„Erum svekktir að við séum búnir að missa nokkra leiki hér og þar“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 19. mars 2026 21:42 Kristófer Acox. Vísir / Anton Brink Valur tryggði sér heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar með öflugum þrigga stiga sigri 85-88 í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld. Kristófer Acox ræddi við Sýn eftir sigurinn í kvöld. „
Hörku sigur og alltaf erfitt að koma hingað að spila og ná í sigur“ sagði Kristófer Acox leikmaður Vals eftir sigurinn í kvöld. „Við vissum að þetta yrði erfitt og við myndum setja mikla vinnu í þetta sem og við gerðum og ég er mjög sáttur með að geta gengið hérna út með tvö stig“ Valsmenn voru frábærir í öðrum leikhluta sem lagði grunninn af þessum frábæra sigri í kvöld. „Við náðum að tengja saman stopp og vorum að fá auðveld stig hinu megin. Við misstum þá svolítið í fyrsta leikhluta og vorum að spila ágætis vörn en þeir voru að ná í sóknarfráköst og við vorum svolítið að koma okkur í villuvandræði og þeir að koma sér á línuna eða bara fá opin skot eftir það“ „Við náðum aðeins að græja það í öðrum leikhluta en við misstum svolítið dampinn í þriðja leikhluta en mjög vel gert að ná að halda út og klára leikinn“ Kristófer Acox var í örlitlu brasi á vítalínunni í kvöld og þá sérstaklega í fjórða leikhluta þegar hávaðinn var sem mestur en hann hefur verið að prófa nýja aðferð. „Ég held að það séu nú alltaf læti þegar ég fer á vítalínuna sérstaklega seint í leikjum. Ég er að reyna prufa einhverja nýja aðferð hérna sem er búið að virka ágætlega en það var eins og bankinn væri lokaður þarna sérstaklega kannski eftir fyrstu þrjú vítin“ „Þetta er bara partur af þessu og þetta er bara úrslitakeppnis stemmning og það eru læti en ég þarf bara að vera kannski aðeins sterkari og halda fókus. Það er það eina sem skiptir máli þegar þú ferð á línuna og ég hef kannski strögglað svolítið þar en ég er eiginlega kominn of djúpt í þessa banka hugleiðingu svo ég þarf eiginlega bara að halda út og halda áfram“ Valur tryggði sér með sigri í kvöld heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. „Það skiptir gríðarlega miklu máli. Við erum svekktir að við séum búnir að missa nokkra leiki hér og þar í gegnum tímabilið sem að hefðu geta sett okkur aðeins hærra upp í töflunni en heimavöllurinn skiptir gríðarlega miklu máli“ „Við enduðum í fjórða í fyrra en okkur var hent út þar strax þannig við þurfum að gera betur í ár“ sagði Kristófer Acox.
Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Sjá meira