„Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Kári Mímisson skrifar 19. mars 2026 21:33 Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, ræðir við sína menn sem þurfa einn sigur í viðbót til að halda sér í deildinni. Vísir/Diego Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var að vonum sáttur með sigur liðsins gegn nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur. Ármenningar tóku forystuna strax í upphafi leiks og tókst að halda gestunum í hæfilegri fjarlægð frá sér allan tímann. „
Við þurftum á þessum sigri að halda enda vissum við að Þór og ÍA myndu vera áfram á eftir okkur. Þetta var mjög mikilvægur leikur hjá okkur og jafn mikilvægur og síðasti leikur á móti Þór, þannig að við erum búnir að vinna núna tvo gríðarlega mikilvæga sigra í röð til þess að halda okkur á lífi.“ Steinar segir að vikan hafi verið góð en liðið vann risasigur gegn Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð en bæði þessi lið eru að berjast við að halda sér í deildinni. „Við gáfum okkur fimmtudaginn til þess að njóta sigursins á Þór og svo fórum við bara í vinnuna strax eftir þann dag. Æfingavikan var góð og menn voru einbeittir. Byrjunin í kvöld var sterk og við hittum svakalega vel, sérstaklega framan af leik. Okkur tókst að keyra á þá, taka þetta opna skot og fengum sjálfstraust í leiðinni. Það er í rauninni það sem skilar okkur sigrinum í kvöld.“ Með sigrinum í kvöld er ljóst að örlög Ármanns eru enn í þeirra höndum. Liðið mætir ÍA í síðustu umferðinni en ljóst er að annað liðið mun falla. Steinar er rólegur spurður út í leikinn gegn ÍA og segist ætla að leyfa sínum mönnum að fagna aðeins í kvöld áður en undirbúningur hefst fyrir leikinn mikilvæga gegn ÍA. „Nú höldum við bara einbeitingunni. Þetta eru búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir. Við erum tilbúnir að leggja okkar alla í þetta í vikunni en leyfum okkur þó að njóta kvöldsins og svo er bara æfing á morgun.“ Bragi Guðmundsson var frábær í kvöld líkt og í síðustu viku gegn Þór. Steinar hrósar Braga en bendir þó á að liðið hafi verið að fá stór framlög frá mörgum í kvöld. „Bragi er bara hrikalega öflugur leikmaður sem spilar á öðrum hraða heldur en flestir aðrir. Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur og hefur þroskast töluvert í vetur. Í kvöld fengum við 10 stig hjá fimm eða sex leikmönnum og það var það sem skilar sigrinum. Okkur tókst að láta boltann ganga og dreifa stigunum sem er það sem þarf hjá okkur.“
Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Fótbolti Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti LeBron James yfirgefur Lakers Körfubolti Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Fótbolti Fleiri fréttir Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Sjá meira