Varði skot mótherja með skónum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 22:33 Alex Caruso er greinilega tilbúinn að beita öllum brögðum til að stöðva andstæðinga sína. Getty/ Christian Petersen NBA-leikmaðurinn Alex Caruso fór heldur betur óhefðbundna leið til að koma í veg fyrir að andstæðingur skoraði hjá honum í leik Oklahoma City Thunder og Orlando Magic í NBA-deildinni í körfubolta á dögunum.
Caruso hafði misst skóinn sinn og reyndi í framhaldinu að verja skot Tristan Da Silva hjá Orlando Magic með umræddum skó. Það er að sjálfsögðu kolólöglegt og Caruso fékk tæknivillu fyrir Þótt það hafi verið fyndið að sjá hann verja skotið með skónum og það hafi farið víða á samfélagsmiðlum, fékk leikmaður Magic körfuna gilda og víti að auki. Alex Caruso just blocked a shot with his shoe 😂He was called for a goal-tend and a technical foul ☠️ (via NBA) pic.twitter.com/G7VlTNCrrW— Basketball Forever (@bballforever_) March 18, 2026 Eftir á útskýrði Caruso skyndiákvörðun sína um að nota lausa skóinn sem vopn. Hann sagði í viðtali við The Oklahoman að hann hefði bara reynt að vera sniðugur í þessum aðstæðum. Hann vissi þó ekki að þetta yrði ansi dýr tilraun þar sem Orlando skoraði þrjú stig úr sókninni. „Ég hef aldrei verið í þessari stöðu áður. Ég veit ekki, þetta bara kom til mín. Ég hélt bara að ég myndi verja skotið. Ég veit satt að segja ekki hvað ég hélt að dómurinn yrði. Ég vissi ekki að þetta yrði ólögleg varsla og tæknivilla,“ sagði Caruso. Alex Caruso ended up receiving a tech for using his shoe on this play 😅 pic.twitter.com/fuDU9hpavW— NBA on ESPN (@ESPNNBA) March 18, 2026 „Ef ég hefði vitað það hefði ég sennilega ekki gert það því þetta eru þrjú stig. Þetta er sjálfgefin karfa og hann setti boltann ekki einu sinni yfir hringinn,“ sagði Caruso. „Um leið og ég var kominn með skóinn í höndina hvarflaði að mér að nota hann. Ekki á illgjarnan hátt, heldur meira svona ‚Leyfðu mér að reyna að gera eitthvað til að stöðva boltann.‘ Þetta er bara eitt af þessum undarlegu atvikum í NBA sem gerist sennilega ekki aftur í svona tíu ár,“ sagði Caruso en það má sjá þetta furðulega atvik hér fyrir ofan. Asked Alex Caruso about his shoe block:"I've never been in that situation before. And, I don't know, it came to me. I just thought I was gonna block it, and I honestly don't know what I thought the call would be. I didn't know it was going to be a goaltending and a tech. If I… https://t.co/3jtUlOazzn pic.twitter.com/qoJbTrqvDB— Justin Martinez (@Justintohoops) March 18, 2026
NBA Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Fótbolti Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti LeBron James yfirgefur Lakers Körfubolti Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Fótbolti Fleiri fréttir Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Sjá meira