Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. mars 2026 15:24 Birnir var ansi sáttur með gullplötuna góðu. Rapparinn Birnir fékk í dag afhenta gullplötu fyrir sölu á plötunni Dyrnar en hún hefur selst í 2.500 eintökum á innan við ári. Jafnframt fékk hann afhentar platínuplötur fyrir fyrstu tvær plötur sínar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgáfufyrirtækinu Öldu Music. Gullplötuviðurkenning fæst fyrir 2.500 seld eintök meðan platínuplata fæst fyrir fimm þúsund seld eintök og eru þær staðfestar af Félagi hljómplötuframleiðenda. Birnir með gull- og platínuplötur sínar fyrir stuttskífur og plötur sínar. Birnir gaf út Dyrnar hjá Öldu Music í maí á síðasta ári, platan sló rækilega í gegn og mörg laganna af plötunni voru með þeim vinsælustu á síðasta ári. Rapparinn kórónaði síðan gott gengið með því að fylla Laugardalshöllina með sögulegri rappveislu í september. Birnir tók við gullplötunni úr hendi Andra Þórs Jónssonar, markaðsstjóra Öldu Music, á sama tíma og hann fékk afhentar platínuplötur fyrir fyrstu tvær plötur sínar, Matador og Bushido. Hann fer að verða uppiskroppa með veggpláss. Birnir er tilnefndur til sex verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum, þar á meðal fyrir lag ársins og plötu ársins, en verðlaunin verða afhent í kvöld.
Tónlist Tímamót Tengdar fréttir Söguleg rappveisla í Laugardalnum Það hefur vart farið fram hjá fólki að rapparinn Birnir stóð fyrir stórtónleikum í Laugardalshöll síðastliðinn laugardag. Það var uppselt á viðburðinn og flest allar heitustu stjörnur landsins tróðu þar upp. 23. september 2025 10:37 Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð „Eins og LXS stelpurnar að ganga frá ykkur,“ syngur rapparinn Birnir í laginu LXS sem er með vinsælustu lögum landsins um þessar mundir. Þar vísar hann í raunveruleikastjörnu- og ofurskvísuhópinn LXS sem eru góðar vinkonur kappans en vináttan var innsigluð með húðflúri síðastliðinn mánudag. 18. júní 2025 10:09 Mest lesið Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Tónlist Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Lífið Hvað veistu um… Akureyri? Lífið Gæðastund með gæðablóðum Lífið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Tónlist Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit Lífið „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Lífið „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ Lífið Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Tónlist Fleiri fréttir Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira
Söguleg rappveisla í Laugardalnum Það hefur vart farið fram hjá fólki að rapparinn Birnir stóð fyrir stórtónleikum í Laugardalshöll síðastliðinn laugardag. Það var uppselt á viðburðinn og flest allar heitustu stjörnur landsins tróðu þar upp. 23. september 2025 10:37
Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð „Eins og LXS stelpurnar að ganga frá ykkur,“ syngur rapparinn Birnir í laginu LXS sem er með vinsælustu lögum landsins um þessar mundir. Þar vísar hann í raunveruleikastjörnu- og ofurskvísuhópinn LXS sem eru góðar vinkonur kappans en vináttan var innsigluð með húðflúri síðastliðinn mánudag. 18. júní 2025 10:09
Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Tónlist
Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Tónlist