Vann milljónir í sjónvarpi: „Hann gæti boðið okkur út að borða“ Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 11:00 Vladimir Bogojevic ehefuer starfað lengi hjá Alba Berlín, sem þjálfari og áður leikmaður. Getty Menn verða ekki ríkir á því að vera í þýskum körfubolta, sagði Vladimir Bogojevic, aðstoðarþjálfari Alba Berlín, sem ákvað að taka þátt í Viltu vinna milljón í þýska sjónvarpinu og krækti í dágóða upphæð.
Martin Hermannsson er einn leikmanna Alba Berlín og samkvæmt grein í Tagesspiegel söfnuðust leikmenn saman á heimili Bogojevic á mánudaginn til að fylgjast með þættinum, sem var tekinn upp fyrir fram. Bogojevic hafði einmitt verið með einn leikmannanna, fyrirliðann Jonas Mattisseck, sem símavin í þættinum en nýtti hann þó ekki. View this post on Instagram A post shared by ALBA BERLIN (@albaberlin) Bogojevic, sem er 49 ára og fæddur í Júgóslavíu, hefur lengi starfað fyrir Alba Berlín og var áður leikmaður félagsins. Hann endaði á að vinna 64.000 evrur, eða jafnvirði um 9,2 milljóna króna. Síðasta spurningin sem hann fékk snerist um það hvert væri helsta umfjöllunarefnið í helmingi tíu mest seldu tímaritanna í Þýskalandi. Bogojevic var að hugsa um að segja „slúður“ en ákvað í staðinn að ljúka keppni og fá fyrrgreinda upphæð en rétt svar hefði skilað honum 125.000 evrum. Rétta svarið var hins vegar „sjónvarpsdagskrá“ svo ákvörðun þjálfarans um að hætta reyndist rétt. „Fyrir 64.000 evrur gæti hann boðið okkur út að borða,“ sagði fyrirliðinn Mattisseck léttur þegar þátturinn hafði verið sýndur. Upphæðina ætla Bogojevic og kona hans hins vegar að nýta í að byggja sér nýtt hús og sagði þjálfarinn að sér veitti ekkert af peningunum því enginn yrði ríkur af því að vera í þýskum körfubolta. „Ef ég væri þjálfari hjá knattspyrnufélagi þá hefði ég örugglega ekki sótt um að komast í þennan þátt,“ sagði Bogojevic léttur í bragði.
Körfubolti Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Sjá meira