Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 06:33 Dominic Calvert-Lewin kemur inn á fyrir Harry Kane á Evrópumótinu 2020. Getty/Nick Potts/ Dominic Calvert-Lewin telur að reynsla sín sem varamaður Harry Kane í enska landsliðinu gæti hjálpað honum að láta draum sinn um að spila á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar rætast.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, mun tilkynna nýjasta hóp sinn á föstudaginn og er Calvert-Lewin meðal þeirra framherja sem berjast um sæti eftir að hafa skorað tíu mörk fyrir Leeds United á þessu tímabili. Þessi 28 ára gamli leikmaður er markahæsti Englendingurinn í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili ásamt Danny Welbeck. Síðasti af ellefu landsleikjum Calvert-Lewin var í júlí 2021 þegar England sigraði Úkraínu 4-0 í átta liða úrslitum Evrópumótsins 2020. https://t.co/kXPsXbYVlV 'Change was needed' - Dominic Calvert-Lewin lifts lid on new lease of life at Leeds United and Everton exit— The Yorkshire Post (@yorkshirepost) March 17, 2026 Í einkaviðtali við hlaðvarpið „The Football Reporters“ á ESPN ræddi Calvert-Lewin um áskorunina sem fylgir því að vera varamaður fyrir Kane, sem er markahæsti leikmaður Englands frá upphafi og hefur verið í ógnvekjandi formi með Bayern München, en hann hefur skorað 48 mörk í 43 leikjum á tímabilinu til þessa. „Maður verður að vera raunsær“ „Maður verður að vera raunsær. Hann [Kane] er einn af bestu miðherjum heims, ef ekki sá besti, hann er afskaplega markheppinn um þessar mundir og hann er fyrirliði Englands,“ sagði Calvert-Lewin. „Þannig að það er gríðarlega erfitt verkefni að ýta honum úr þeirri stöðu. Það mætti segja að ég hafi verið varamaður hans áður á EM 2021, svo ég hef reynslu af því hvernig það er,“ sagði Calvert-Lewin. Andlega sterkur og alltaf tilbúinn „Maður verður að vera andlega sterkur og alltaf tilbúinn, þannig að ef kallið kemur þá ertu klár í slaginn. Ég var aðeins yngri þá og það voru erfiðar stundir á því móti þar sem mér fannst að ég hefði kannski getað fengið að koma inn á eða mig langaði að spila af hreinni ákefð og löngun til að hafa áhrif,“ sagði Calvert-Lewin. Dominic Calvert-Lewin is forcing his way back into the England World Cup conversation. 👀We spoke to the Leeds striker about rediscovering his best form and what comes next. 👇https://t.co/AgggzcoTA3— Squawka (@Squawka) March 12, 2026 „Það gerðist ekki eins oft og ég hefði viljað en núna, þegar ég lít til baka, þá verður maður að meta það sem er fyrir framan mann. Með þeirri reynslu sem ég hef núna, þá veit ég hvaða hlutverki ég er að berjast fyrir. Ég veit hvað það er og ég sætti mig við það.“ Ekki enn rætt við Tuchel Calvert-Lewin viðurkenndi að hann hefði ekki enn rætt við Tuchel en stefnir á jákvæðan endi á tímabilinu með Leeds, sem er í fimmtánda sæti deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti. „Auðvitað er þetta draumur og það hefur verið draumur minn síðan ég var krakki að fara á heimsmeistaramót, eins og hjá öllum ungum fótboltamönnum. Ég er engin undantekning. Aðalmarkmið mitt er að gera mitt besta fyrir Leeds, halda áfram að skora mörk og vinna leiki, tryggja að við verðum í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili og ef það er nóg til að tryggja mér sæti í HM-hópnum, þá er það bónus,“ sagði Calvert-Lewin.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Leeds United Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira