Innlent

Við­skipta­vinir hafi fengið fjölda svikapósta

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Einn viðskiptavinur Símans fékk yfir þrjátíu tölvupósta líkt og þennan á myndinni.
Einn viðskiptavinur Símans fékk yfir þrjátíu tölvupósta líkt og þennan á myndinni. Samsett/Vilhelm/Aðsend

Viðskiptavinir Símans hafa fengið senda fjölda svikapósta og falskra tölvupósta sem komist hafa í gegnum póstsíur. Fyrirtækið minnir viðskiptavini sína á að ýta ekki á óþekkta hlekki og hnappa.

Í tilkynningu á heimasíðu Símans segir að í svikapóstunum sé reynt að fá viðtakendur til að ýta á hlekki eða hnappa sem leiði þau inn á svikasíður.Til að mynda standi í póstunum „Viðvörun: Ódulkóðuð nettenging - Smelltu hér til að virkja örugga dulkóðun“.

Til að mynda fékk einn viðskiptavinur Símans ítrekað tölvupósta líkt og þann sem má sjá hér fyrir ofan. 

„Viðskiptavinum Símans er ráðlagt að smella ekki á slíka hlekki eða hnappa í tölvupóstinum sem kunna að innihalda óværu,“ segir í tilkynningunni.

Síminn vinnur nú með CERT-IS að loka léninu og loka á móttöku þessara tölvupósta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×