„Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. mars 2026 14:02 Ásta Júlía er lykilleikmaður hjá íslenska landsliðinu. Vísir / Hulda Margrét Landsliði Íslands í körfubolta hefur borist mikill liðsstyrkur fyrir gríðarmikilvægan lokaleik gegn Portúgal í kvöld. Ásta Júlía Grímsdóttir hefur jafnað sig af meiðslunum sem héldu henni frá keppni í síðasta leik.
Miðherjinn var fjarri góðu gamni í tapinu gegn Serbíu í síðustu viku, eftir að hafa snúið sig illa á fyrstu æfingunni úti í Serbíu. Hún sneri svo aftur heim til Íslands og þakkaði fyrir það að heilir sex dagar séu á milli leikjanna tveggja. Nú er komið að Portúgölum í kvöld og Ásta er klár í slaginn. „Ég stefni bara á að spila. Ég er búinn að taka nokkrar æfingar og líður vel. Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja, svo ég geti verið tilbúin.“ Serbía tryggði sér toppsætið í riðlinum með sigrum gegn Íslandi og Portúgal í síðustu viku. Nú berjast Ísland og Portúgal um annað sætið í lokaleik riðlakeppninnar. Ísland þarf þó stóran sigur, allavega þrjátíu stiga, til að tryggja annað sætið og áframhald í milliriðla undankeppninnar. Tap þýðir að liðið dettur úr leik og fer ekki á EM árið 2027. Ásta Júlía segir liðið hafa tekið mikil framfaraskref á skömmum tíma og býst við betri frammistöðu í kvöld heldur en í síðasta leik gegn Portúgal. „Við vorum með nýjan þjálfara þá, þannig að síðasti gluggi var svolítið svona við að prófa okkur áfram og sjá hvernig hlutirnir virkuðu. Mér fannst við miklu betri á móti Serbíu núna, þannig að ég býst líka við betri leik á móti Portúgal.“ Nánar verður fjallað um leik Íslands og Portúgal í Sportpakka Sýnar í kvöld. Leikurinn verður líka í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira