Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 94-88 | Deildarmeistarar eftir magnaðan viðsnúning Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. mars 2026 21:20 Jordan Semple sýndi afbragð varnarleik á lokamínútunum. vísir Eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum vann Grindavík 94-88 sigur gegn Stjörnunni í 20. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Með sigrinum tryggði Grindavík sér toppsætið, deildarmeistaratitilinn og heimavallarrétt út úrslitakeppnina. Liðið hafði ekki orðið deildarmeistari síðan árið 2013 en þá varð Grindavík Íslandsmeistari síðar um vorið. Líkt og í mörgum öðrum sigrum Grindavíkur á tímabilinu var þessi alls ekki öruggur. Þeir þurftu að hafa mikið fyrir honum, en eins og svo oft áður voru Grindvíkingar sterkari þegar mest reyndi á. Stjörnustrákar voru mjög sprækir í fyrri hálfleik og um miðjan þriðja leikhluta voru þeir komnir með fimmtán stiga forystu. Þá hófst svakalegur viðsnúningur hjá Grindavík, sem tókst að jafna leikinn fyrir lok þriðja leikhluta og taka forystuna í fjórða leikhlutanum. Stjarnan veitti mótspyrnu og var nálægt því að jafna leikinn undir blálokin, en toppliðinu tókst að yfirstíga það áhlaup og sigla sigrinum í höfn. Leikurinn byrjaði af krafti og var allt í járnum fyrstu mínúturnar í fyrsta leikhluta. Þegar um það bil tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum féll vörn og sókn Grindvíkinga og Stjarnan komst í ellefu stiga forskot, 19-30. Grindvíkingum tókst að minnka muninn niður í þrjú stig snemma í seinni leikhluta en Stjarnan svaraði strax með fimm stigum í röð, þristur frá Ægi og svo tveggja stiga karfa frá Pablo eftir tapaðan bolta Grindvíkinga. Grindvíkingum tókst í kjölfarið að minnka muninn aftur niður í þrjú stig en tapaðir boltar og misheppnuð skot urðu til þess að Stjarnan jók forskot sitt á ný. Níu stiga munur var á liðunum er liðin gengu til búningsherbergja eftir fjörugan fyrri hálfleik. Þriðji leikhluti byrjaði afar vel hjá Stjörnunni sem komst í 15 stiga forskot. Tvær þriggja stiga körfur í röð frá Daniel Mortensen kom þó í veg fyrir frekara forskot. Grindvíkingum tókst svo smám saman að saxa á forskotið og á lokamínútu leikhlutans var staðan jöfn, 69-69. Grindvíkingar töpuðu boltanum i lokasókn sinni og Seth LeDay kom þá Stjörnunni aftur yfir, 69-71. Staðan var því afar spennandi fyrir fjórða leikhluta. Það vantaði ekki stemningu í höllinna þegar Grindvíkingar komust í átta stiga forystu í þriðja leikhlutanum. Þá fór liðið illa með sóknirnar sínar og tókst Stjörnunni að minnka muninn niður í tvö stig á lokamínútu leiksins en Grindvíkingar héldu þá haus og sigldu sigrinum heim, 94-88. Atvik leiksins Að mínu mati þegar Grindavík kemst yfir í fjórða leikhluta og hvernig höllin trylltist af spennu. Stjörnur og skúrkar Kane var stigahæstu með 26 stig fyrir deildarmeistarana, átta fráköst og þrjár stoðsendingar. Daniel Mortensen var svo næstur með 22 stig og fimm stoðsendingar. Pargo kom þar á eftir með 17 stig, sex fráköst og sjö stoðsendingar. Luka var með 26 stig fyrir Stjörnuna og sjö fráköst. Seth LeDay kom þar næstur með 25 stig og níu fráköst. Stemning og umgjörð Góð stemning í höllinni og heyrðist vel í stuðningsmönnum beggja liða framan af. Þvílík stemning sem myndaðist í seinni hálfleik og sérstaklega fjórða leikhluta þegar það leit út fyrir að heimamenn gætu snúið leiknum sér í hag. Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Jón Þór Eiríksson og Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson stóðu vaktina á parketinu í dag. Það var góð færð á Reykjanesbrautinni, dagarnir eru orðnir lengri og vart hægt að hugsa sér betri leið fyrir dómarana til að eyða kvöldinu sínu en í höllinni í Grindavík. Viðtöl Ólafur Ólafsson: „Ég set blóð, svita og tár í þetta og mér finnst ekkert skemmtilegra“ Jóhann Þór Ólafsson: „Gerðum heiðarlega tilraun til að henda þessu frá okkur í restina“ Baldur Þór Ragnarsson: „Við náðum ekki að vera nógu sterkir á svellinu.“ Baldur Þór þjálfari StjörnunarVísir/Vilhelm „Seinni hálfleikur var ekki góður fyrir okkur hérna í dag. Við erum með 26 tapaða bolta og þeir vinna frákasta einvígið líka. Allur vilji og kraftur var þeirra megin og það er eins og það er. Við hefðum þurft að jafna það en við fórum of mikið að væla yfir dómum og fleira. Við náðum ekki að vera nógu sterkir á svellinu.“ Bónus-deild karla UMF Grindavík Stjarnan