„Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Andri Már Eggertsson skrifar 12. mars 2026 22:35 Steinar Kaldal þjálfari Ármanns, var sáttur eftir leik Vísir/Anton Ármann vann afar mikilvægan sigur gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld 74-79. Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var afar sáttur með sigurinn og það var mikil gleði í hópnum eftir leik. „
Menn voru virkilega glaðir enda var þetta risasigur fyrir okkur. Þetta er einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta. Við ætlum að fá að njóta þess í kvöld en svo förum við að einbeita okkur að Grindavík sem er næsti leikur,“ sagði Steinar afar ánægður með sigurinn. Fyrri hálfleikur var kaflaskiptur þar sem Ármann byrjaði betur en Þórsarar tóku við í öðrum leikhluta og fóru í tíu stiga áhlaup. Staðan í hálfleik var 42-43. „Við byrjuðum betur en svo tók Lárus leikhlé og þeir komu sterkir út úr leikhléinu og spiluðu góða vörn og við fórum að tapa óþarflega mörgum boltum. Við náðum að halda út en svo duttum við í rugl en þessi endurkoma okkar var gríðarlega sterk.“ Aðspurður út í tilfinninguna farandi inn í fjórða leikhluta og spennustigið sagði Steinar að það hafi verið mjög gaman að spila þennan leik sem minnti á úrslitakeppnina. „Það var fullt af fólki í stúkunni og æsingur og læti. Þetta var eins og í úrslitakeppninni en við erum ekki að fara þangað en fengum að upplifa hana í kvöld. Það eru tveir leikir eftir og við þurfum að halda áfram.“ Ármann fór úr fallsæti með sigri og Steinar var mjög ánægður með hvernig liðið hefur brugðist við mótlætinu í vetur. „Ég er hvað stoltastur af hvað menn hafa verið samheldnir í liðinu. Auðvitað hafa menn verið brjálaðir eftir ákveðna leiki en við höfum alltaf komið til baka og það er trú í liðinu sem hefur hjálpað mikið,“ sagði Steinar Kaldal að lokum.
Ármann Bónus-deild karla Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjá meira