Potter framlengdi við Svíþjóð áður en HM-örlög landsliðsins ráðast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 17:17 Graham Potter stýrir sænska landsliðinu næstu fjögur árin en fyrst á dagskránni er að reyna að koma liðinu á HM 2026. @svenskfotboll Graham Potter hefur skrifað undir nýjan samning sem þjálfari sænska karlalandsliðsins í fótbolta.
Nýi samningurinn gildir til ársins 2030 en hann var áður með stuttan samning. Svíþjóð spilar í þessum mánuði umspilsleiki um réttinn til að spila á heimsmeistaramótinu í sumar í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Graham Potter 💛💙 pic.twitter.com/1E5xGEeAkz— Svensk Fotboll (@svenskfotboll) March 12, 2026 Englendingurinn Potter tók við af Jon Dahl Tomasson sem þjálfari sænska karlalandsliðsins síðasta haust. Það gerðist eftir slakt gengi í undankeppni HM. Svíþjóð hafði tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í undankeppni HM og Potter tókst ekki að snúa gengi liðsins við þar sem liðið tapaði 4-1 fyrir Sviss í fyrsta leik hans við stjórnvölinn. Eftir 1-1 jafntefli við Slóveníu lauk Svíþjóð sinni hræðilegu keppni í neðsta sæti B-riðils, en liðið á enn möguleika á að komast áfram þökk sé árangri sínum í Þjóðadeildinni 2024-25. Svíþjóð mætir Úkraínu í umspilsleik þann 26. mars. Ef liði Potters tekst að vinna þann leik mætir það annaðhvort Póllandi eða Albaníu í leik um sæti á lokamótinu. Graham Potter 🗣️🎥 Se intervjun: https://t.co/ECrvOLApkP pic.twitter.com/K2ezejOp9u— Svensk Fotboll (@svenskfotboll) March 12, 2026 Potter hafði áður verið rekinn sem stjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni. Potter hafði á sínum tíma skapað sér nafn í sænska fótboltanum. Hann leiddi Östersund til óvænts bikarmeistaratitils og komst síðar með liðið langt í Evrópudeildinni. Þaðan lá leiðin í enskan fótbolta þar sem hann fékk sérstaklega mikið lof fyrir störf sín hjá Brighton. Frammistaðan skilaði honum samningi við Chelsea en það gekk ekki upp. Hann var látinn fara eftir sjö mánuði. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=rx6OLsswZdo">watch on YouTube</a>
Sænski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Sjá meira