Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Samúel Karl Ólason skrifar 12. mars 2026 09:07 Kim Jong Un og dóttir hans Kim Ju Ae skutu væntanlega hverju skoti í miðjuna. AP/KCNA Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Kim Ju Ae, dóttir hans og væntanlegur arftaki, heimsóttu á dögunum byssuverksmiðju. Þar prófuðu þau meðal annars nýjar skammbyssur með háttsettum herforingjum i er Norður-Kóreu. Degi áður höfðu þau fylgst saman með tilraunum með nýjar stýriflaugar einræðisríkisins.
Myndir úr verksmiðjunni sýna feðginin bæði klædd leðurjökkum og skjóta úr nýjum skammbyssum. Yonhap fréttaveitan, sem er frá Suður-Kóreu, vitnar í KCNA, ríkismiðil Norður-Kóreu, og segir að þar komi fram að framleiðsla nýrra skammbyssa sem feðginin voru að skoða hefði hafist í síðasta mánuði, eftir að nýja hönnunin var samþykkt af Kommúnistaflokki ríkisins. Fleiri ráðamenn voru með í för eins og No Kwang Chol, varnarmálaráðherra, og Kim Yo Jong, systir Kims. Fleiri embættismenn og herforingjar heimsóttu verksmiðjuna.AP/KCNA Kim Ju Ae virðist hafa fylgt föður sínum við hvert fótmál á undanförnum mánuðum. Hún hefur meðal annars farið með honum í opinbera ferð til Kína og er hún byrjuð að tjá sig opinberlega um opinber málefni. Fyrr í vikunni var hún með föður sínum að fylgjast með tilraunskotum með nýjar stýriflaugar. Yfirvöld í Suður-Kóreu telja þetta til marks um að Kim ætli sér að gera hana formlega að arftaka sínum. Sjá einnig: Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Þetta er ekki í fyrsta sinn sem myndir eru birtar af dóttur Kims meðhöndla skotvopn. Í síðasta mánuði voru birtar myndir af þeim feðginum skjóta úr rifflum sem Kim Jong Un var að gefa háttsettum embættismönnum. Ekki er vitað með vissu hve gömul Kim Ju Ae er en talið er að hún hafi fæðst árið 2013. Kim faðir hennar er 42 ára gamall og tók hann hana fyrst með sér á opinberan viðburð árið 2022, þegar feðginin virtu fyrir sér nýja tegund langdrægra skotflauga sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Þá voru nokkrar myndir af þeim birtar opinberlega en hún er eina barnið sem vitað er að Kim hafi eignast með eiginkonu sinni Ri Sol Ju. Talið er að hann eigi einnig eldri son en það hefur aldrei verið viðurkennt og hann hefur aldrei sést opinberlega í Norður-Kóreu. Kim Ju Ae prófaði í síðasta mánuði riffla sem faðir hennar gaf embættismönnum.AP/KCNA
Norður-Kórea Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira