Mojtaba Khamenei særður en óhultur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. mars 2026 08:28 Veggmynd sýnir Ali Khamenei rétta syni sínum Mojtaba íranska fánann, undir vökulum augum Ruhollah Khomenei. Getty/Majid Saeedi Mojtaba Kahmenei, nýr æðsti leiðtogi Íran, er særður en á lífi. Þetta segir Yousef Pezeshkian, sonur forsetans Masoud Pezeshkian. „
Ég heyrði fregnir af því að Herra Mojtaba Khamenei hefði særst. Ég hef spurst fyrir hjá vinum með tengsl. Þeir sögðu mér að, þökk sé guði, þá sé hann öruggur og óhultur,“ skrifaði Pezeshkian yngri, sem starfar sem ráðgjafi stjórnvalda, á Telegram. Samkvæmt New York Times særðist Khamenei yngri á fyrsta degi árása Bandaríkjanna og Ísrael. Ríkismiðlar í Íran hafa staðfest að hann hafi særst en ekki hversu alvarlega. Zahra Haddad-Adel, eiginkona Mojtaba, lést í árásinni sem gerð var á aðsetur æðsta leiðtogans Ali Khamenei. Ali og eiginkona hans Mansoureh Khojasteh Bagherzadeh létust einnig í árásinni. Þá er eitt barna Mojtaba sagt hafa látið lífið en miðlum ber ekki saman um hvort það var sonur eða dóttir. Vangaveltur hafa verið uppi um ástand Mojtaba Khamenei þar sem ekkert hefur heyrst frá honum frá því hann var útnefndur nýr æðsti leiðtogi Íran á dögunum. Það þykir undarlegt í ljósi þess að hann á að vera að leiða mótaðgerðir Írana en á sama tíma er vert að hafa í huga að stjórnvöld í Ísrael hafa hótað því að ráða hann af dögum. Þannig kemur í sjálfu sér ekki á óvart að hann hafi haldið sig til hlés.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira