Körfubolti

Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bam Adebayo fagnar afreki sínu eftir leik með liðsfélögum sínum í Miami Heat.
Bam Adebayo fagnar afreki sínu eftir leik með liðsfélögum sínum í Miami Heat. Getty/Megan Briggs/

Bam Adebayo skoraði 83 stig, næstflest stig í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta, og leiddi Miami Heat til 150-129 sigurs á Washington Wizards í nótt.

Adebayo var kominn með 31 stig í fyrsta leikhluta, 43 stig í hálfleik og 62 stig í lok þriðja leikhluta. Hann hitti úr 20 af 43 skotum sínum utan af velli, 36 af 43 vítaskotum og 7 af 22 þriggja stiga skotum.

Bæði fjöldi nýttra vítaskota og heildarfjöldi vítaskota hjá Adebayo voru ný met í einum leik í NBA. Fyrra metið fyrir heildarfjölda vítaskota var 39 og var í eigu Dwight Howard, sem fór tvisvar sinnum á vítalínuna jafn oft. Metið fyrir nýtt vítaskot í einum leik var 28, sett af Wilt Chamberlain og Adrian Dantley.

Með meira en Kobe skoraði mest

Chamberlain nýtti 28 vítaskot kvöldið sem hann skoraði 100 stig árið 1962 – eini leikurinn í sögu NBA sem var stigahærri en leikur Adebayo í nótt. Adebayo fór fram úr körfuboltahetjunni sinni, Kobe Bryant, og á nú næststigahæsta leik allra tíma en persónulegt met Bryants var 81 stig.

LeBron James átti fyrra stigamet Miami Heat í einum leik; 61 stigs frammistaða hans gegn Charlotte var þann 3. mars 2014. Nikola Jokic hjá Denver átti fyrra stigametið á þessu tímabili í NBA eftir að hafa skorað 56 stig.

„Þetta hljómar fáránlega“

Adebayo fór fram úr þeim báðum í þriðja leikhluta – og hélt bara áfram.

„Wilt, ég, svo Kobe,“ sagði Adebayo. „Þetta hljómar fáránlega.“

Hann var með tárin í augunum þegar hann faðmaði móður sína, Marilyn Blount, áður en hann yfirgaf völlinn eftir leikinn. Hann hélt tilfinningunum í skefjum fram að því.

„Fyrir mér snerist þetta bara um að halda ró minni, einbeitingu og skilja að ég gæti náð einhverju sérstöku,“ sagði Adebayo.

„Ég hélt ekki að það yrðu 83 stig. En að upplifa þessa stund er óraunverulegt, því eins og ég sagði, maður, að geta gert þetta á heimavelli, fyrir framan mömmu mína, fyrir framan fólkið mitt, fyrir framan stuðningsmennina, þetta er sögulegur áfangi sem mun aldrei gleymast,“ sagði Adebayo.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×