HM-leikir í Boston í uppnámi Valur Páll Eiríksson skrifar 9. mars 2026 22:15 Robert Kraft, eigandi New England Patriots, á Gillette-völlinn þar sem leikir eiga að fara fram á HM í sumar. Chip Somodevilla/Getty Images Aðeins 94 dagar eru þar til HM karla í fótbolta hefst í Norður-Ameríku. Enn er ekki endanlega staðfest að sjö fyrirhugaðir leikir í Boston geti farið fram vegna deilna um kostnað.
Boston er á meðal borga sem halda á leiki á komandi móti en sjö leikir eiga að fara fram á Gillette-vellinum í Foxborough, heimavelli New England Patriots í NFL-deildinni. Völlurinn er rekinn af Kraft Group – nefnt eftir Robert Kraft, eiganda Patriots. Hópurinn hefur um nokkurra vikna skeið átt í erjum við skipulagsnefnd bæjaryfirvalda í Foxborough, sem er 18 þúsund manna bær rétt utan Boston, þar sem völlurinn er staðsettur. Svo virðist sem kostnaður af öryggismálum falli á bæinn, sem yfirvöld í Foxborough eru allt annað en sátt við. Deilan snýst um 7,8 milljóna dollara fjárveitingu sem bærinn hefur reiknað út að sé nauðsynleg til að fjármagna lögreglu og slökkvilið í þá 39 daga mótið stendur yfir í júní og júlí. Nefndin segir að bærinn hafi ekki samþykkt að standa straum af þessum kostnaði sem hluta af upphaflega útboðsferlinu vegna þess að samkomulagið var gert milli FIFA, Kraft Group, sem eigenda vallarins, og staðbundinnar gestgjafanefndar Boston, sem opinberlega heitir Boston Soccer 2026. Misvísandi yfirlýsingar hafa verið gefnar út af aðilunum þremur vegna málsins en allir kveðast þó vilja vinna að lausn. Illa hefur þó gengið að finna þá lausn undanfarnar vikur. Frestur til lokaákvörðunar hefur verið settur 17. mars næstkomandi.
HM 2026 í fótbolta Bandaríkin Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira