Skilvirkir ferlar, betri reglur Einar Bárðarson skrifar 9. mars 2026 11:02 Einföldun regluverks var rauði þráðurinn á nýliðnu Iðnþingi Samtaka iðnaðarins, þar sem lögð var áhersla á að þótt regluverk sé nauðsynlegt til að tryggja öryggi og gæði geti of flókið og íþyngjandi kerfi dregið úr verðmætasköpun, sérstaklega hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Markmiðið ætti því ekki endilega að vera færri reglur heldur betri reglur: skilvirkari ferlar, samræmdar kröfur og betri stjórnsýsla sem gerir frumkvöðlum og fyrirtækjum kleift að verja meiri tíma í nýsköpun, vöxt og þjónustu við viðskiptavini.Í kjölfar þess þegar svokallað Hygge-mál náði hámarki í umræðunni síðastliðið haust og Samtök fyrirtækja í veitingarekstri (SVEIT) birtu viðhorfskönnun meðal félagsmanna um starfsemi heilbrigðiseftirlita landsins varð ljóst að margir rekstraraðilar upplifa regluverkið sem þungt og óskilvirkt. Í framhaldinu tók ráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, mikilvægt skref þegar hann afnam kröfu um fjögurra vikna auglýsingatíma vegna starfsleyfa í veitingarekstri sem hafði þá nýverið tekið gildi og olli öllu meira tjóni en henni var ætlað að fyrirbyggja.Með þeirri breytingu var stigið skref í átt að einfaldara og skynsamlegra regluverki fyrir íslenskt atvinnulíf.Um árabil hafa lítil og meðalstór fyrirtæki þurft að starfa innan regluverks sem í mörgum tilfellum hefur orðið flóknara og meira íþyngjandi en þörf er fyrir. Fjögurra vikna auglýsingaskylda vegna starfsleyfa var eitt dæmi um slíkt fyrirkomulag. Hún olli óþarfa töfum í rekstri án þess að ljóst væri að raunveruleg þörf væri fyrir slíkt ferli. Raunar virðist sem fáir hafi kallað eftir þessari skyldu – og síst þau heilbrigðiseftirlit sem sinna framkvæmd reglnanna.Það er því ánægjulegt þegar stjórnvöld taka skref til að einfalda ferla og draga úr óþarfa skriffinnsku. Fyrirtæki þurfa að geta einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: að skapa verðmæti, þjónustu og störf. Þegar stjórnsýslan er einföld og skilvirk nýtist tími og orka betur bæði hjá fyrirtækjum og hjá hinu opinbera.Nú er mikilvægt að halda áfram á þessari vegferð og taka fleiri skref í átt að einfaldara og skilvirkara regluverki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Slíkar umbætur eru ekki aðeins til hagsbóta fyrir atvinnulífið, heldur fyrir samfélagið allt. Ég heyrði Jóhann Pál boða það í erindinu sínu á Iðnþinginu að hann ætlaði að leita frekari leiða til einföldunar og við hjá Sveit styðjum alla slíka leit.Höfundur er framkvæmdastjóri Sveit, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Mest lesið Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Sjá meira
Einföldun regluverks var rauði þráðurinn á nýliðnu Iðnþingi Samtaka iðnaðarins, þar sem lögð var áhersla á að þótt regluverk sé nauðsynlegt til að tryggja öryggi og gæði geti of flókið og íþyngjandi kerfi dregið úr verðmætasköpun, sérstaklega hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Markmiðið ætti því ekki endilega að vera færri reglur heldur betri reglur: skilvirkari ferlar, samræmdar kröfur og betri stjórnsýsla sem gerir frumkvöðlum og fyrirtækjum kleift að verja meiri tíma í nýsköpun, vöxt og þjónustu við viðskiptavini.Í kjölfar þess þegar svokallað Hygge-mál náði hámarki í umræðunni síðastliðið haust og Samtök fyrirtækja í veitingarekstri (SVEIT) birtu viðhorfskönnun meðal félagsmanna um starfsemi heilbrigðiseftirlita landsins varð ljóst að margir rekstraraðilar upplifa regluverkið sem þungt og óskilvirkt. Í framhaldinu tók ráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, mikilvægt skref þegar hann afnam kröfu um fjögurra vikna auglýsingatíma vegna starfsleyfa í veitingarekstri sem hafði þá nýverið tekið gildi og olli öllu meira tjóni en henni var ætlað að fyrirbyggja.Með þeirri breytingu var stigið skref í átt að einfaldara og skynsamlegra regluverki fyrir íslenskt atvinnulíf.Um árabil hafa lítil og meðalstór fyrirtæki þurft að starfa innan regluverks sem í mörgum tilfellum hefur orðið flóknara og meira íþyngjandi en þörf er fyrir. Fjögurra vikna auglýsingaskylda vegna starfsleyfa var eitt dæmi um slíkt fyrirkomulag. Hún olli óþarfa töfum í rekstri án þess að ljóst væri að raunveruleg þörf væri fyrir slíkt ferli. Raunar virðist sem fáir hafi kallað eftir þessari skyldu – og síst þau heilbrigðiseftirlit sem sinna framkvæmd reglnanna.Það er því ánægjulegt þegar stjórnvöld taka skref til að einfalda ferla og draga úr óþarfa skriffinnsku. Fyrirtæki þurfa að geta einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli: að skapa verðmæti, þjónustu og störf. Þegar stjórnsýslan er einföld og skilvirk nýtist tími og orka betur bæði hjá fyrirtækjum og hjá hinu opinbera.Nú er mikilvægt að halda áfram á þessari vegferð og taka fleiri skref í átt að einfaldara og skilvirkara regluverki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Slíkar umbætur eru ekki aðeins til hagsbóta fyrir atvinnulífið, heldur fyrir samfélagið allt. Ég heyrði Jóhann Pál boða það í erindinu sínu á Iðnþinginu að hann ætlaði að leita frekari leiða til einföldunar og við hjá Sveit styðjum alla slíka leit.Höfundur er framkvæmdastjóri Sveit, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði.
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar