Hafnaboltinn kallar á NFL-leikstjórnandann Valur Páll Eiríksson skrifar 5. mars 2026 14:00 Kyler Murray hefur fallið úr náðinni í Arizona en það virðist sem hann geti valið úr nokkrum kostum hvað framhaldið varðar. Jeff Bottari/Getty Images Leikstjórnandinn Kyler Murray er á förum frá Arizona Cardinals í NFL-deildinni í amerískum fótbolta eftir sjö ára veru. Honum býðst að fara þaðan til hafnaboltaliðsins Oakland Athletics sem valdi Murray í nýliðavali MLB-deildarinnar árið 2018.
Murray var frambærilegur spilari í bæði amerískum fótbolta og hafnabolta í háskóla og Oakland A‘s völdu hann níunda í nýliðavali MLB-deildarinnar árið 2018. Murray skrifaði undir samning og hugðist hefja æfingar með liðinu vorið 2019. Í kjölfarið átti hann aftur á móti stórkostlegt ár í ameríska fótboltanum og hlaut Heisman-verðlaunin, sem besti háskólaleikmaður ársins, tímabilið 2018 og ákvað í kjölfarið að skrá sig í nýliðaval NFL-deildarinnar. Þar var hann valinn fyrstur af Cardinals og tók í kjölfarið ákvörðun um að ljúka hafnaboltaferlinum og slíta samningi við Oakland. Murray hefur leikið með Cardinals undanfarin sjö ár en hlutverk hans farið minnkandi síðustu misseri. Oakland A‘s eiga enn réttinn að hinum 28 ára gamla Murray ákveði hann að feta nýjan veg og skipta aftur í hafnaboltann. Þar standa honum opnar dyr. „Kyler er leikstjórnandi í efsta klassa, og ég er viss um að hann eigi úr mörgum tilboðum að velja til að halda fótboltaferlinum áfram,“ segir David Forst, framkvæmdastjóri Oaklands, í samtali við MLB.com. „Hafandi sagt það, þá veit hann að við erum alltaf til í að skoða endurkomu hans í hafnaboltann með A‘s, vilji hann það á einhverjum tímapunkti.“ Ekkert hefur bent til þess að Murray hyggist breyta til. Minnesota Vikings, Miami Dolphins, New York Jets og Atlanta Falcons eru sögð meðal NFL-liða sem líta hýru auga til kappans.
NFL Hafnabolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira