Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Stefán Árni Pálsson skrifar 5. mars 2026 14:00 Juan og Ásthildur giftu sig eftir bakpokaferðalag. Hér eru þau með börnum sínum tveimur. Juan Camilo Román Estrada er maður sem flestir ættu að kannast við þrátt fyrir að gera sér ekki endilega grein fyrir því. Auglýsingar, leiksviðið, þættir og kvikmyndir er meðal þess sem hann hefur tekið sér fyrir hendur á þeim átján árum sem hann hefur verið hér á landi.
Í gærkvöldi fékk Tómas Arnar að hitta þennan merkilega mann og þræddi ævi Juan sem flutti til Íslands fyrir tilstilli örlaganna og ástarinnar. „Mig dreymdi einu sinni að ég væri einhvers staðar annars staðar og ég væri á einhverri leiklistarhátíð. Og í draumnum var ég að tala reiprennandi tungumál sem ég skildi ekki neitt. Árum seinna kynntist ég konu frá Íslandi. Ég kom til Íslands og fyrsta vinnan mín var í Þjóðleikhúsinu. Það kom þetta heim og saman. Merkilegt en þetta var einhvers konar fyrirboði,“ segir Juan. Pablo Escobar í heimalandinu Tómas hitti Juan í Háskóla Íslands þar sem hann er með skrifstofu en hann leiðir verkefnið Sprettur sem snýr að aðlögun innflytjenda að háskólanámi. „Ég kom úr fjölskyldu sem var alltaf mjög elskuleg og yndislegt að vera í kringum. Það var svolítið erfið staða í Kólumbíu, sérstaklega í Medellín. Það var þetta innra stríð með Pablo Escobar og eiturlyfjasölu í gangi og mikið óöryggi og ofbeldi.“ Var borgin bara svolítið eins og vígvöllur? „Að mörgu leyti. Ég man þegar ég var lítill þá vorum við vinirnir oft hræddir og sumir leiddust út í ýmislegt og voru myrtir. Þetta var partur af því að alast þarna upp.“ Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í æsku hugsar Juan til yngri áranna með hlýjum hug og segir mikla ást frá fjölskyldu sinni og listir hafa bjargað sér frá því að verða fyrir sömu örlögum og sumir vinir sínir. Sumir æskuvinir Juan fóru út af sporinu og voru að lokum myrtir í heimalandinu. „Ég segi það sem bjargaði mér persónulega var að eiga mína fjölskyldu en þar var mikil ást og kærleikur. Þeir sem lentu í vandamálum voru fólk þar sem enginn var í kringum þá til að faðma.“ Í sex mánuði á bakpokaferðalagi Ísland kom snemma við í ævi Juan sem grunaði ekki á þeim tíma að hann myndi setjast að á þessari eyju í norðri. Allt breyttist þegar hann kynntist Ásthildi Valtýsdóttur sem var þá í Kólumbíu til að læra mannfræði en hún starfar í dag sem lögfræðingur. „Ég byrjaði í háskólanum í byggingarverkfræði. En á sama tíma var ég með alls konar áhuga á leiklist og var í leiklistarhópi, ljóðahópi og danshópi. Ég nýtti tímann í háskólanum vel,“ segir Juan sem kynntist eiginkonu sinni á þeim tíma. Juan og Ásthildur fóru í bakpokaferðalag um Suður-Ameríku í sex mánuði og gengu síðan í það heilaga. „Við vorum bara vinir. Ég vissi eitthvað af Íslandi en svo kynntist ég íslenskri konu. Við vorum að spjalla og ég varð mjög hrifinn. Við ákváðum að fara í ferðalag og við söfnuðum smápening og fórum í bakpokaferðalag í sex mánuði í gegnum Suður-Ameríku,“ segir Juan og bætir við að ferðin hafi verið mjög rómantísk. Eftir sex mánuði tóku þau ákvörðun um að giftast. Hjartað leiddi Juan til Íslands en nú hefur hann átt heima hér í nær tuttugu ár og eiga hann og Ásthildur tvo fallega drengi saman. Þegar Juan kom til Íslands árið 2007 talaði hann litla ensku og þekkti ekki stakt orð í íslensku. En hann var samt fljótur að aðlagast lífinu hér á landi eins og heyra má um í innslaginu hér að neðan.
Ísland í dag Þjóðleikhúsið Kólumbía Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Sjá meira