Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 13:30 Sigurkarfan sem Elvar Már Friðriksson skoraði verður lengi í minnum höfð. vísir/Hulda Margrét Íslenska körfuboltalandsliðið er með tvo sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum í undankeppni heimsmeistaramótsins eftir tvo leiki við Litháa í nýloknum glugga. Ísland er í fjórtánda sæti á nýjasta styrkleikalistanum á heimasíðu FIBA Basketball.
Sigurinn eftirminnilegi á Litháum í Laugardalshöllinni hjálpar íslensku strákunum að fara upp um heil sex sæti á listanum en liðið hoppar yfir þjóðir eins og Ungverjaland, Úkraínu, Portúgal, Tékkland, Holland og Eistland.„Það er eins og Ísland hafi alltaf endað með fimmtíu prósenta árangur í öllum sínum landsliðsgluggum. Þeir eru eins og Atlanta Hawks-landsliðsgluggarnir, sama hvað gerist, þeir enda alltaf á sléttu. Það er heill Seinfeld-þáttur um þetta hugtak, trúið okkur,“ skrifar pistlahöfundur á heimasíðu FIBA Basketball.Hann bætti síðan við.„Allavega, í þessum glugga er það staðfest, þeir náðu stærsta óvænta sigri allra tíma með því að leggja Litháen með flautukörfu. Munurinn á milli þjóðanna tveggja á heimslista FIBA karla voru 36 sæti.“ FIBA Basketball Það eru lið sem Ísland hefur unnið fyrir ofan strákana okkar á listanum því Ítalir skipa níunda sætið og Litháar eru í ellefta sætinu. Bretar, eina þjóðin sem Ísland hefur ekki unnið í þessari undankeppni, er nú í 24. sætinu.Það verður örugglega talað lengi um endurkomusigurinn ógurlega á Litháum og hvað þá 19 stiga fjórða leikhlutann og sigurkörfuna hjá Elvari Má Friðrikssyni.Það er því gaman að sigurinn fær sérfræðinga FIBA Basketball til að fá mun meiri trú á íslenska landsliðinu sem dreymir um að komast á heimsmeistaramót í fyrsta sinn í sögunni.
HM 2027 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira