Sara tekur ekki þátt í Open og missir því af heimsleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 08:32 Sara Sigmundsdóttir hefur ekki komist á heimsleikana síðan hún sleit krossband í hné og það breytist ekki í ár. @sarasigmunds Íslenska CrossFit-konan Sara Sigmundsdóttir mun keppa aftur í vor en þó ekki um sæti á heimslistanum. Hún ákvað að taka enga áhættu í endurhæfingu sinni og sleppti því að taka þátt í undankeppni heimsleika CrossFit í ár.
Sara hefur ekki keppt á heimsleikunum í að verða sex ár, bæði vegna alvarlegra meiðsla en einnig vegna þess að henni mistókst að tryggja sér sæti á heimsleikunum. Sara fékk aftur á móti sérstakt boð í aðra keppni. Sara fékk nefnilega eitt af sérstökum boðum um að keppa á fyrsta viðkomustað World Fitness Project-mótaraðarinnar en það mót fer fram í London í maí. Sara heldur áfram að reyna að koma sér aftur á keppnisgólfið eftir fjölda meiðsla og heilsufarsvandamála og sagði að upphafleg áætlun hennar fyrir 2026 hefði verið að keppa á öðrum viðkomustað mótaraðarinnar. Hún fékk hins vegar sérstakt boð frá WFP-teyminu um að keppa á fyrsta viðkomustaðnum. Þannig að áætlun hennar núna er að halda áfram endurhæfingu hjá Jump Ship Phoenix í Arizona með það að markmiði að stíga á keppnisgólfið 1. maí í London. Hvað varðar CrossFit Open, þá mun nafn Söru Sigmundsdóttur ekki birtast á stigatöflunni. Það er ekki vegna þess að hún vilji ekki keppa, heldur vegna þess að hún treystir þjálfara sínum og ákvað að tefla ekki framförum sínum í tvísýnu. Ákvörðunin um að sitja hjá á Open-mótinu var þó ekki tekin fyrr en æfingin fyrir 26.1 var opinberuð. „Ef það eru mörg hopp, ef það er einhver æfing sem gæti hugsanlega sett mig aftur á bak eða hent öllu í ruslið sem ég hef lagt á mig síðustu sjö vikur, þá sagði ég bara að það yrði ákvörðun þjálfarans, því auðvitað vil ég gera allt,“ útskýrði Sara í viðtali við The Barbell Spin. Æfing 26.1 innihélt mikið af veggboltum og hoppum yfir kassa. Svo virðist sem það hafi verið kassahoppin sem ollu mestum áhyggjum, þar sem Sara gerði breytta útgáfu af æfingunni sem innihélt samt alla veggboltana sem voru í 26.1. View this post on Instagram A post shared by The Barbell Spin (@thebarbellspin)
CrossFit Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira