Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 09:01 Þökk sé viðtalinu fékk Sturla Holm Lægreid miklu meiri athygli heldur en þeir sem unnu hans greinar á Vetrarólympíuleikunum. Getty/Hendrik Schmidt Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid varð heimsfrægur á Vetrarólympíuleikunum þegar hann játaði framhjáhald fyrir allri heimsbyggðinni. Hann hefur nú rætt upplifun sína af öllu því sem gekk á í framhaldinu af viðtalinu fræga og játaði það að í kjölfarið hafi hann fundið fyrir auknu álagi á líkamanum.
Sturla var með tárin í augunum þegar hann sagði frá framhjáhaldinu á Ólympíuleikunum í Mílan og Cortina. Líka líkamleg viðbrögð „Ég held að allir sem hafa upplifað eitthvað svipað geti sett sig í þessi spor. Það verða líka líkamleg viðbrögð. Svona er þetta bara, þetta er hluti af pakkanum,“ sagði Sturla Holm Lægreid við norska ríkisútvarpið í nýju viðtali. Íþróttir á hæsta stigi snúast um að ná forskoti en með stórum breytingum í einkalífinu getur það haft áhrif á frammistöðuna. Hjá Lægreid rataði framhjáhaldið og ástarsorgin í beina útsendingu í sjónvarpi og þaðan út til alls heimsins. „Það er ein sem horfir kannski ekki á í dag. Fyrir hálfu ári kynntist ég ástinni í lífi mínu. Fallegustu, yndislegustu manneskju í heimi og fyrir þremur mánuðum gerði ég stærstu mistök lífs míns og hélt fram hjá henni,“ sagði Lægreid eftir að hann vann bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í 20 kílómetra skíðaskotfimi. Nú segir Lægreid að hann hafi varla getað borðað á meðan á mótinu stóð og að hann hafi grennst. Er orðinn grennri „Það var erfitt að borða og sofa, svo ég er orðinn grennri en ég ætti að vera. Það hefur verið gott að vera heima í Bærum og byggja mig aftur upp,“ sagði Sturla við NRK. Eftir Ólympíuleikana taka við þrjár vikur af keppni hjá skíðaskyttunum. Fyrst á dagskrá er heimsbikarmót í Kontiolahti í Finnlandi. Aðspurður hvernig hann telji að þetta muni hafa áhrif á hann í Finnlandi svarar Lægreid: „Ég vona að við fáum nóg af góðum mat hér, svo ég geti borðað vel og byggt mig upp aftur, en ég er spenntur fyrir forminu. Það kemur aftur þriggja vikna skorpa og ég nokkrum kílóum léttari eftir Ólympíuleikana,“ bætir hann við. Vann fjögur verðlaun eftir viðtalið Bronsið í 20 km einstaklingskeppni voru fyrstu verðlaun Lægreids í því sem varð að mikilli verðlaunasöfnun á Ólympíuleikunum. Hinn 29 ára gamli íþróttamaður vann verðlaun í öllum fjórum greinum sem hann keppti í, nokkur þeirra eftir að hann opnaði sig um framhjáhaldið í beinni útsendingu. Sturla á einnig gull úr boðgöngu frá Ólympíuleikunum í Peking 2022. „Það hefur gengið furðu vel. Ég hef verið fljótur á skíðunum. Þetta sýnir bara að hlutirnir þurfa ekki að vera fullkomnir en maður verður að vera með hugann við verkefnið. Maður verður að gera sitt besta þegar á reynir og þá þarf maður ekki að hafa fullkominn undirbúning, borða fullkomlega eða sofa fullkomlega. Það er það sem maður gerir á augnablikinu sem er kannski mikilvægast hér og nú,“ sagði Sturla. Leitaði sér aðstoðar Fyrrverandi kærasti Sturlu tjáði sig nafnlaust við Verdens Gang daginn eftir viðtalið. Hún sagði að það hefði verið sárt að ganga í gegnum þetta. Sturla baðst afsökunar í kjölfarið og sagðist vona að henni liði vel. Sturla segir sjálfur í samtali við NRK að hann hafi nýtt sér faglega sálfræðiaðstoð. „Ég ræddi svolítið við sálfræðing og þess háttar, en ég get líka mælt með því ef maður gengur í gegnum eitthvað í lífinu. Að hafa einhvern til að tala við. Hvort sem það eru vinir, fjölskylda eða sálfræðingur. Allt er betra en ekkert,“ sagði Sturla.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Tengdar fréttir Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina lýkur í dag og höfum við fengið að fylgjast með mögnuðum afrekum íþróttafólks í algjörum heimsklassa. Leikarnir hafa líka boðið upp á athyglisverðar fréttir sem hafa vakið töluverða athygli. Hér eru þær dregnar saman í einn pakka. 22. febrúar 2026 12:16 Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu. 17. febrúar 2026 07:31 „Ég er ekki kærastan“ Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi koma einni staðreynd á hreint eftir að samfélagsmiðlar og fleiri fóru að halda því fram að hún væri kærastan sem norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá. 16. febrúar 2026 08:00 Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. 12. febrúar 2026 09:30 Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. 11. febrúar 2026 07:59 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Sjá meira
Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina lýkur í dag og höfum við fengið að fylgjast með mögnuðum afrekum íþróttafólks í algjörum heimsklassa. Leikarnir hafa líka boðið upp á athyglisverðar fréttir sem hafa vakið töluverða athygli. Hér eru þær dregnar saman í einn pakka. 22. febrúar 2026 12:16
Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu. 17. febrúar 2026 07:31
„Ég er ekki kærastan“ Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi koma einni staðreynd á hreint eftir að samfélagsmiðlar og fleiri fóru að halda því fram að hún væri kærastan sem norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá. 16. febrúar 2026 08:00
Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. 12. febrúar 2026 09:30
Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. 11. febrúar 2026 07:59