Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Árni Sæberg skrifar 4. mars 2026 14:54 Skjáskot úr myndbandi sem tekið var úr bandaríska kafbátnum. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna Bandaríkjaher sökkti írönsku freigátunni Iris Dena með tundurskeyti, sem skotið var úr kafbáti, á Indlandshafi í morgun. Að sögn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er þetta í fyrsta sinn frá lokum seinni heimsstyrjaldar sem Bandaríkjamenn sökkva skipi óvinveitts ríkis með tundurskeyti.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Petes Hegseth varnarmálaráðherra síðdegis. „Bandarískur kafbátur sökkti írönsku herskipi, sem hélt að það væri öruggt á alþjóðlegu hafsvæði. Í staðinn var því sökkt með tundurskeyti. Hljóðlátur dauðdagi. Þetta er í fyrsta skipti sem tundurskeyti er notað til að sökkva óvinveittu skipi síðan í seinni heimsstyrjöld. Eins og í því stríði, þegar við hétum enn stríðsmálaráðuneytið, berjumst við til sigurs,“ sagði hann. Hvíta húsið hefur birt myndband af því þegar áhöfn kafbátsins sökkti skipinu íranska: This Iranian warship thought it was safe in international waters. It wasn't.The @DeptofWar is fighting to win. 🇺🇸 pic.twitter.com/4bGMubuSQu— The White House (@WhiteHouse) March 4, 2026 Hegseth nefndi skipið ekki á nafn en áður hafði talsmaður sjóhers Srí Lanka greint frá því að um 140 manns væri saknað eftir að íranskt skip, nefnt Iris Dena, hefði sokkið undan ströndum Galle, sem er borg á suðvesturströnd Srí Lanka. Ekkert lát er á árásum á valin skotmörk í Íran, en mannréttindasamtök segja að tala látinna þar í landi, frá því sprengjuherferð Bandaríkjamanna og Ísraela hófst, sé nú að nálgast ellefu hundruð manns. Heimildamaður BBC í Teheran segir ástandið í borginni versna með hverjum degi sem líður.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira