Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Þórarinn Þórarinsson skrifar 4. mars 2026 13:00 Flótti parsins Davíðs og Lovísu Óskar frá Dúbaí virðist vera að ganga upp en þau byrjuðu að leita flóttaleiða þegar neyðartilkynningaglamrið hófst í símum þeirra. Mynd/Aðsend Kærustuparið Davíð Guðlaugsson og Lovísa Ósk Davíðsdóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt útlit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp. „
Ferðalagið til Múskat var strembið og erfitt og við lentum í smávægilegu veseni á landamærunum,“ sagði Davíð við Vísi í gærkvöld. „Það gekk þó allt á endanum með hjálp bílstjórans.“ Vísir greindi frá því á mánudaginn að parið hafi, í samráði við Brynjar bróður Davíðs, ákveðið að reyna að koma sér sjálft frá Dúbaí eftir óljós og misvísandi svör frá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Brynjar virkjaði sambönd sín í Dúbaí, útvegaði þeim bílstjóra og bókaði flugfar frá Óman til Jedda í Sádi-Arabíu. „ Ef maður nær að komast þangað þá held ég að maður komist nánast hvert sem er,“ sagði Davíð við Vísi á mánudaginn. Hann lét þess þá jafnframt getið að með þessu færu þau í raun þvert gegn ráðleggingum borgaraþjónustunnar. „Það kemur svo bara í ljós seinna meir hver rétta ákvörðunin er.“Þessi fyrsti leggur flóttaleiðar þeirra frá Dúbaí gekk upp eftir fimm klukkustunda næturakstur og taugarnar róuðust aðeins þegar þau komust á flugvöllinn í Múskat. „Annars gekk mjög vel á flugvellinum í Múskat, allt mjög eðlilegt og enginn svakalegur mannfjöldi,“ sagði Davíð í gærkvöld þegar þau Lovísa voru nýlent í Jedda.„Við vorum að lenda í Jedda og það verður alveg að viðurkennast að maður var hálfstressaður bæði fyrir og í fluginu. Við eigum svo flug í fyrramálið til London.“ Lovísa Ósk horfir frá hótelsvölunum á himininn yfir Dúbaí þar sem vá býr í lofti.Mynd/Aðsend
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íslendingar erlendis Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira