Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2026 11:33 Mikil óvissa ríkir vegna flutninga á olíu sem hefur valdið talsverðum hækkunum á heimsmarkaðsverði. AP Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í morgun vegna átaka tengdra Íran og röskunar á olíuflutningi frá Persaflóasvæðinu.
Verð á Brent-hráolíu, sem er evrópska viðmiðið, var um 82.68 bandaríkjadalir á tunnu í morgun og hafði þá hækkað um nærri 5 bandaríkjadali, en síðast var verðið svo hátt í júlí árið 2024. Bandarísk WTI-olía var um 75,91 bandaríkjadalir í morgun og hafði hækkað um 4,68 bandaríkjadali. Reuters segir hækkunina mega einna helst rekja til óvissu með siglingar um Hormuz-sund, sem er inngangurinn að Persaflóasvæðinu og lykilflutningaleið fyrir olíu og jarðgas, en 20% af olíu og gasi heimsins fer þar um. Þegar hafa verið gerðar árásir á nokkur skip sem hafa siglt um svæðið. Jafnframt er greint frá því á Reuters að skipafélög forðist nú sundið og tryggingafélög hafi dregið til baka tryggingar vegna stríðsátaka, sem fæli skipafélögin enn frekar frá þessari flutningaleið. Heimsmarkaðsverðið hefur því hækkað um þrjú til fjögur prósent á einum morgni sem telst talsvert á olíumarkaði. Reuters bendir einnig á að olíuverð hafi hækkað um 10% eftir því sem átökin hafa harðnað.
Bensín og olía Tengdar fréttir Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 3. mars 2026 09:35 Mest lesið Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 3. mars 2026 09:35
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf