„Hvenær á að fara að sýna þessu Bodö-liði alvöru virðingu?“ Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2026 09:32 Leikmenn Bodö/Glimt hafa slegið í gegn í Meistaradeild Evrópu í vetur og eru komnir í 16-liða úrslit, eftir að hafa slegið út Inter. Getty/Francesco Scaccianoce Sérfræðingarnir í Meistaradeildarmörkunum segja ótrúlegan árangur Bodö/Glimt í Meistaradeild Evrópu jafnvel enn magnaðri í ljósi þess að leiktíðinni í Noregi sé löngu lokið.
Bodö/Glimt vann Inter á San Siro í gærkvöld og hafði þar með betur í báðum leikjum sínum við besta lið Ítalíu, eftir að hafa áður unnið Manchester City og Atlético Madrid til að komast áfram í keppninni. „Hvenær á að fara að sýna þessu Bodö-liði alvöru virðingu?“ spurði Kjartan Henry Finnbogason á Sýn Sport í gærkvöld en brot úr umræðunni má sjá hér að neðan. Klippa: Dásömuðu framgöngu Bodö/Glimt „Það er alltaf talað um að þetta sé heppni, þetta eigi ekki að vera svona og þetta sé eitthvað „plast-lið“ [með gervigras á heimavellinum]. Þeir eru búnir að moka völlinn sinn í Noregi, sundurspila City og Inter, og fara bæði á Metropolitano og San Siro og vinna. Við verðum að taka hattinn ofan fyrir þessu,“ sagði Kjartan. „Það er líka það að þeir eru ekki á miðju tímabili. Þeir eru að spila einhverja æfingaleiki á Spáni, ferðast fram og til baka, og skafa af bílunum… Þetta er skemmtileg saga,“ bætti Kjartan við. Ljóst er að Bodö/Glimt mun dragast gegn annað hvort Manchester City eða Sporting Lissabon, þegar dregið verður í 16-liða úrslit á föstudaginn. City hefur þegar fengið að kynnast því um hve erfiðan andstæðing er að ræða. „Þetta er ekki bara eitthvað plastgervigraslið frá Norður-Noregi sem er bara að njóta góðs af aðstæðum þar. Þeir eru búnir að fara til Þýskalands og sækja úrslit gegn Dortmund, og líka til Madridar og Ítalíu. Það er ótrúlegt hvað þeir eru búnir að stíga upp og gera flotta hluti seinni part keppninnar í vetur,“ sagði Atli Viðar Björnsson.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira