Sex milljóna sekt fyrir að mæta seint Sindri Sverrisson skrifar 24. febrúar 2026 10:32 Hansi Flick er með skýrar reglur fyrir Ferran Torres og félaga. Getty/Maria Gracia Jimenez Þjóðverjinn Hansi Flick vill sjá til þess að það ríki agi í herbúðum fótboltaliðs Barcelona og ef leikmenn eru seinir fyrir mega þeir eiga von á þungum sektum.
Frá þessu greindu leikmennirnir Pedri og Ferran Torres í viðtali við El Hormiguero. „Ef að maður mætir seint þá sýnir maður öðrum vanvirðingu, því þá þarf restin af hópnum að bíða,“ sagði Pedri. Á síðustu leiktíð mætti Jules Koundé of seint á fund fyrir leik við Alavés og var settur á varamannabekkinn í refsingarskyni. Fyrr á þessari leiktíð var Marcus Rashford tekinn út úr liðinu fyrir leik gegn Getafe, eftir að hafa mætt tveimur mínútum of seint á fund. „Við breyttum aðeins reglunni um stundvísi. Ef að maður mætir of seint þá þarf að greiða sekt,“ sagði Pedri. Torres staðfesti að sektirnar gætu numið 40.000 evrum, eða hátt í sex milljónum króna, og sagði ljóst að menn kæmust ekkert upp með eitthvað slen. En þó að það ríki agi þá segja þeir Pedri og Ferran að Flick gæti þess að gefa leikmönnum ákveðið frelsi, og þeir geti til að mynda tekið upp sín stöku TikTok-myndbönd og dansa í klefanum án þess að Þjóðverjinn skipti sér af. Börsungar eru eftir helgina komnir á topp spænsku deildarinnar, stigi fyrir ofan Real Madrid, þegar þrettán umferðir eru eftir. Næsti leikur er við Villarreal á laugardaginn og liðið spilar svo seinni leik sinn við Atlético Madrid í undanúrslitum bikarsins 3. mars, þar sem Atlético er 4-0 yfir.
Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Apollon - FH | Fyrsti Evrópuleikur FH „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira