Woods: Úrslitakeppnin nálgast Árni Jóhannsson skrifar 20. febrúar 2026 21:41 Keyshawn Woods var frábær í þriðja leikhluta og skóp sigurinn hjá Val. Vísir / Anton Brink Keyshawn Woods skoraði 22 stig fyrir Val í kvöld þegar mennirnir frá Hlíðarenda lögðu Álftanes 87-108 í 18. umferð Bónus deildar karla. 16 af stigum Woods komu í þriðja leikhluta þar sem leikmaðurinn snögghitnaði. „
Ég myndi ekki segja að ég hafi átt erfitt í fyrri hálfleik“, sagði Keyshawn Woods þegar hann var spurður að því hvort hann hafi átt erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik og hvað hafi svo gerst í seinni hálfleik. Hann var einungis með sex stig þegar leikurinn var hálfnaður. „Callum var að finna sig vel og aðrir leikmenn í fyrri hálfleiknum. Ég var bara finna minn stað. Svo þegar komið var í þriðja leikhluta var númerið mitt kallað upp og ég komst af stað og hitnaði. Liðsfélagar mínir héldu svo áfram að leita að mér.“ „Við erum með fullt af gæjum sem geta hitnað og komist af stað. Körfubolti er leikur tveggja hálfleika og þriðji leikhlutinn var minn leikhluti og félagar mínir gerðu mér kleyft að halda áfram að gera vel.“ Var eitthvað sérstakt sem Valsmenn breyttu milli hálfleikja en Valur leiddi með átta stigum eftir fyrri hálfleik sem var í miklu jafnvægi? „Nei, við vildum bara vera aggressívir á báðum endum vallarins. Við vildum spila hratt með boltann og án hans líka. Það er stíllinn okkar og það var markmiðið þegar við komum út úr búningsklefanum.“ Valur hefur unnið tvo leiki í röð og Finnur Freyr þjálfari talaði um það fyrir leik að hann vildi fara inn í landsleikjahléið á góðu nótunum. Hvernig metur Keyshawn Woods sjálfstraustið hjá Valsliðinu? „Það er hátt. Þetta er þessi tími ársins. Við erum að fá smá pásu núna og erum eins og allir að reyna að gera okkur klára fyrir úrslitakeppnina sem nálgst óðfluga.“ Er Valur komið nálægt því að vera klárt í slaginn? „Þið sjáið það þegar tíminn kemur. Þið munið sjá“, sagði Woods með glott sigurvegarans þegar hann kvaddi.
Valur Bónus-deild karla Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Fleiri fréttir Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Sjá meira