„Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér“ Stefán Árni Pálsson skrifar 18. febrúar 2026 10:02 Þorsteinn hefur staðið í baráttunni í mörg ár. Þorsteinn V. Einarsson kennari og kynjafræðingur var gestur í Íslandi í dag á Sýn í gær en hann er mættur til leiks á nýjan leik með samfélagsmiðlasíðuna Karlmennskan. Hann dró sig í hlé um tíma. Þorsteinn hefur oft vakið mikla athygli fyrir umræðu sína um jafnrétti kynjanna. Hann kennir í dag kynjafræði við Menntaskólann í Kópavogi. „
Aðalástæðan fyrir því af hverju ég hætti með til dæmis hlaðvarpið Karlmennskuna og fór aðeins að einbeita mér að öðru var að ég var bara orðinn þreyttur,“ segir Þorsteinn í samtali við Sindra Sindrason. „Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér. Hulda konan mín gaf út bók þarna um jólin, ég man ekki einu sinni hvenær það var 2022 eða 23 og bara eftir það þá bara krassaði ég á einhvern vegg og ég fékk ekki hugmynd. En til að mynda í svona fimm ár á undan því gat ég ekki horft á sjónvarpið af því ég var svo fullur af hugmyndum og var alltaf að skapa og búa til og finna eitthvað teik. Svo bara eftir þetta þá var ég bara, ég nenni ekki að hugsa. Ég var bara algjörlega búinn og ég fann að ég þyrfti bara aðeins að kúpla mig út og gera eitthvað annað. En auðvitað spilar það inn í það sem hefur verið í gangi bara í samfélaginu.“ Fann fyrir miklum meðbyr Sindri spyr hvort kynjafræði og femínismi séu ekki jafn ráðandi skoðanir í dag? „Þegar ég byrjaði með verkefnið mitt, Karlmennskan, þá sannarlega finn ég fyrir meðbyr og það kemur í kjölfarið á metoo. Karlmennskan kemur þarna í kjölfarið af því og úti um allt er sterk umræða um karllægni og ofbeldi. Þá förum við að beina sjónum okkar að því. Af hverju er allt þetta ofbeldi? Hvernig tengist þetta karlmennsku og karlmennskuhugmyndum? Við förum eitthvað að spá í þetta og ég finn klárlega meðbyr. Ég er með einhverja þúsundir fylgjenda á samfélagsmiðlum og hlaðvarpið var á þeim tíma, alveg þokkalega vinsælt. En ég upplifði aldrei að ég væri í einhverri ríkjandi ráðandi stöðu þar sem ég gæti eitthvað ráðið stemningunni í samfélaginu.“ Hann segist alltaf hafa upplifað að það sem hann væri að standa fyrir væri á skjön við meginstraumsskoðanir. „Ég upplifði meira að segja að á hátindi Karlmennskunnar þá varð maður var við algjöran viðbjóð. Ég geri mér fyllilega grein fyrir öllum mínum forréttindum og ég er hvergi jaðarsettur en ég er búinn að safna einhverri orku og ég get ekki leyft mér að fela mig inni í Menntaskólanum í Kópavogi og bara vera kennari, sem ég elska, af því ég bý líka yfir ákveðinni þekkingu.“ Hann segist hafa ákveðið sjónarhorn sem hann vill miðla. View this post on Instagram „Þessi sería sem er að koma út núna eru átta þættir. Þetta eru viðtöl við okkar helstu sérfræðinga á ákveðnum sviðum. Ég hef þennan miðil enn þá, ég hef þetta platform enn þá og mér finnst það bara vera eitthvað sem ég á að gera, ég á að nýta þetta, ég á að nýta forréttindin,“ segir Þorsteinn. Sindri spyr þá hvort við sem samfélag höfum ekki náð kynjajafnrétti? „Nei. Það er fullt af konum í valdastöðum og þetta er heldur betur svona bensín á tankinn hjá þeim sem að hafa alltaf fullyrt að jafnréttið hafi verið komið. En ef þú bara skoðar timarit.is, þá geturðu séð að fólk hefur haft áhyggjur af því að jafnréttið sé löngu komið. Og jafnvel gott betur af því að konur eru nú komnar á þing og í helstu valdastöður. En við getum alveg talað um feðraveldi sem þetta karllæga, kynjaða valdakerfi. Ef við ætlum að heimsækja það, þá snýst það ekki bara um kynin. Og það hefur aldrei gert það. Þetta snýst líka um stétt, stöðu og uppruna. Þetta snýst um allar þessar félagslegu breytur. Þannig að þegar við erum að horfa á að einhver, frekar einsleitur hópur af konum sé í valdastöðum, ég meina það er frábært og það er merki um einhvern árangur. En þýðir það að við búum í samfélagi þar sem að öll geta fengið að vera þar sem þau eru og fólk hafi öll sömu tækifærin? Nei. Það er klárlega misskipting í okkar samfélagi, það er klárlega enn þá ofbeldi.“ Hér að neðan má sjá viðtalið við Þorstein í heild sinni.
Ísland í dag Jafnréttismál Mest lesið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Menning „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Dolly Parton látin Lífið Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Lífið Fleiri fréttir Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Sjá meira