„Af því að hann er bara miklu betri körfuboltamaður“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 11:01 Jeremy Pargo var öflugur í fyrsta leik sínum með Grindavík á þessu tímabili. Vísir/Hulda Margrét Topplið Grindavíkur kom mörgum á óvart með því að láta Bandaríkjamanninn Khalil Shabazz fara á dögunum en Teitur Örlygsson, sérfræðingur Bónus Körfuboltakvölds, segir að miðað við fyrsta leikinn hjá nýja manninum hafi það verið góð ákvörðun.
Jeremy Pargo var með 24 stig og 8 stoðsendingar í fyrsta leik þar sem Grindavík vann sex stiga útisigur á Keflavík. Kanaskipti Grindavíkur voru til umræðu í Körfuboltakvöldi. „Ég var nánast búinn að afskrifa Grindavík með Shabazz en ég veit ekki hvort það séu allir sammála því. Þeir taka þessa áhættu og eftir því sem maður sér í kvöld var þetta hárrétt ákvörðun hjá Grindavík. Þeir eiga miklu meiri möguleika með Pargo en með Shabazz,“ sagði Teitur Örlygsson, sérfræðingur í Bónus Körfuboltakvöldi. Klippa: Körfuboltakvöld: Jeremy Pargo er betri en Khalil Shabazz „Af hverju er það,“ spurði Stefán Árni. „Af því að hann er bara miklu betri körfuboltamaður. Við sjáum það kannski ekkert á tölunum en þegar ég horfi á hann þá skil ég bara af hverju þessi gæi var að spila bara í NBA ár eftir ár. Þetta er bara allt annar gæðaflokkur,“ sagði Teitur. „Pargo sem leikmaður er náttúrulega bara hágæðaleikmaður. Ég hef ekki áhyggjur af að hann sé ekki nógu góður heldur bara verandi sjálfur búinn að vera með menn sem eru komnir yfir besta aldurinn,“ sagði Benedikt Guðmundsson og nefndi leikmenn sem spiluðu hjá honum í Njarðvík eins og þá Fotios Lampropoulos og Nicolas Richotti. „Um leið og farið er að spila tvisvar til þrisvar í viku þá á bara eftir að reyna á hann og hvort að hann höndli það, nái að halda sér heilum. Skrokkurinn hjá honum er allt öðruvísi heldur en 29 ára skrokkur,“ sagði Benedikt Guðmundsson. „Já, og skrokkurinn hans hélt ekki á síðasta tímabili,“ sagði Stefán Árni. „Nei en ég vona innilega að það geri það. Þetta er frábær leikmaður og frábær leikstjórnandi. Það kann enginn leikinn betur í deildinni heldur en Jeremy Pargo. Þetta er virkilega jákvætt fyrir Grindavík í kvöld en það kemur síðan ekkert í ljós bara fyrr en á reynir í úrslitakeppninni og hversu langt þeir fara, hvort þetta hafi verið góð skipti eða ekki,“ sagði Benedikt. Það má horfa á alla umræðuna um kanaskipti Grindvíkinga hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld UMF Grindavík Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti Af botninum og varð Evrópumeistari eftir 324 daga fjarveru vegna meiðsla Sport „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Fleiri fréttir Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Sjá meira