„Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 23:17 Chris Kavanagh hefur oft átt betri dag en þegar hann dæmdi leik Aston Villa og Newcastle í dag. Getty/Serena Taylor Dómarinn Chris Kavanagh og aðstoðarmenn hans áttu nokkrar hræðilegar lykilákvarðanir í 3-1 sigri Newcastle gegn Aston Villa í ensku bikarkeppninni í fótbolta í dag. Alan Shearer segir ljóst að dómarar séu orðnir háðir VAR.
Kannski sem betur fer fyrir Kavanagh þá bitnuðu skelfileg mistök dómaranna mun frekar á liðinu sem vann leikinn, Newcastle. Engin myndbandsdómgæsla er í bikarkeppninni fyrr en í næstu umferð, þeirri fimmtu, og því hafði Kavanagh enga leið til að leiðrétta mistök sín á meðan á leik stóð. Fyrstu mistökin voru þegar Tammy Abraham kom Villa í 1-0, þrátt fyrir að vera klárlega rangstæður. Newcastle hefði svo átt að fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Lucas Digne sem stóð metra inni í eigin vítateig en í staðinn fékk Kavanagh það einhvern veginn út að hann hefði staðið utan teigs og dæmdi aukaspyrnu. Newcastle United will be in Monday's FA Cup fifth round draw after beating Aston Villa 3-1. But the game will most likely be remembered for the dreadful officiating: ▪️ Aston Villa's goal should not have stood. Tammy Abraham had mistimed his run and was a yard offside when… pic.twitter.com/2eShLdaJdh— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) February 14, 2026 Digne var auk þess stálheppinn að fá ekki að líta rauða spjaldið í leiknum og fleiri umdeild atvik áttu sér stað þar sem VAR hefði sjálfsagt gripið inn í. Alan Shearer sagði dómurum í raun vorkunn þar sem þeir væru orðnir svo vanir því að geta hallað sér að VAR. „Síðustu fimm eða sex mánuði hafa þeir getað treyst á VAR en koma svo inn í svona aðstæður og þá er allt breytt. Þess vegna er þetta erfitt fyrir þá,“ sagði Shearer í Match of the Day hjá BBC. „En ég myndi vilja að dómarar geti staðið sig almennilega í sínu starfi. Þar er ég ekki að ætlast til of mikils, er það?“ „Ef að það var einhver þörf á því þá er þetta sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara. Frábært dæmi. Þessir gæjar virðast skelfingu lostnir þegar þeir þurfa að taka ákvörðun án þess að hafa öryggisteppi,“ sagði Shearer.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira