Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 11:01 Dean Brennan tók við stjórnartaumunum hjá Barnet í september 2021 og stýrði því aftur upp í ensku deildarkeppnina á síðasta tímabili með því að komast upp úr utandeildinni. Getty/Phill Smith Dean Brennan, knattspyrnustjóri Barnet, hefur verið dæmdur í níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara með orðbragði og vísa til kyns hennar.
Brennan var kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir atvikið sem átti sér stað í heimaleik gegn Shrewsbury þann 6. september, þar sem honum var vísað af velli um miðjan fyrri hálfleik fyrir mótmæli af dómara leiksins, Kirsty Dowle. Hinn 45 ára gamli Brennan neitaði sök við yfirheyrslur en óháð nefnd komst að annarri niðurstöðu og úrskurðaði hann í bann auk tvö þúsund punda sektar og skyldunámskeiðs. Barnet manager Dean Brennan has been given a nine-game ban for verbally abusing a female referee and making reference to her gender. pic.twitter.com/NZbOmljw1E— Match of the Day (@BBCMOTD) February 12, 2026 „Í gegnum allt þetta mál hef ég alfarið neitað kæru knattspyrnusambandsins um mismunun. Þótt nefndin hafi komist að sinni niðurstöðu, sem ég verð að virða, er ég ekki sammála ákvörðun hennar,“ sagði Brennan í yfirlýsingu. Enska knattspyrnusambandið sagði að skriflegar ástæður í málinu og ákvörðunin yrðu birtar síðar. Kæra um óviðeigandi hegðun með því að nota móðgandi og/eða særandi orð í garð dómara var meðhöndluð sem „alvarlegt brot“ af knattspyrnusambandinu vegna tilvísunar – beinnar eða óbeinnar – til kyns. Brennan tók við stjórnartaumunum hjá liðinu í september 2021 og stýrði því aftur upp í ensku deildarkeppnina á síðasta tímabili með því að komast upp úr utandeildinni. Bannið þýðir að Brennan mun ekki geta stýrt liðinu af hliðarlínunni fyrr en í heimaleik gegn Cambridge United þann 28. mars næstkomandi. Í yfirlýsingu hans sagði enn fremur að „það er pláss fyrir alla í fótbolta“ og þakkaði hann félaginu, stjórnarformanni og eigendum auk fulltrúa frá samtökum deildarstjóra og fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn. „Persónulega hefur fótboltinn gefið mér allt sem ég hef í dag; ég skulda fótboltanum allt. Hann gerði mér kleift að kynnast eiginkonu minni og stofna fjölskyldu okkar og eignast vini. Þetta gerði mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, um leið og ég er trúr írskum uppruna mínum, sem ég er afar stoltur af,“ sagði Brennan. CLUB STATEMENT - DEAN BRENNANhttps://t.co/N7W90NsV8y#BarnetFC🐝 pic.twitter.com/j7icVMcUOp— Barnet FC 🐝 (@BarnetFC) February 12, 2026
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira