„Ekkert frábær körfuboltaleikur“ Kári Mímisson skrifar 12. febrúar 2026 22:05 Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, fannst leikurinn ekkert frábær en fagnaði sigrinum innilega. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var að vonum sáttur með frækinn sigur sinna manna í kvöld gegn Álftanesi. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi en úrslitin réðust á lokamínútu leiksins. „
Ég er gríðarlega sáttur með að sækja sigur hér í kvöld. Þetta var svona, að mér fannst allavega, ekkert frábær körfuboltaleikur. Bæði lið náðu ekki að spila eins vel í kvöld og þau geta. Ég er mjög sáttur með að finna stöðvanir og hitta þessi mikilvægu skot hér undir lokin til þess að ná í þennan sigur“ sagði Jakob strax að leik loknum. Leikurinn var hnífjafn nánast allan tímann og alltaf þegar maður fékk það á tilfinninguna að annað liðið ætlaði að stinga af þá svaraði hitt. Jakob segir að undir lokin hafi hans lið náð að herða vörnina og finna stöðvanirnar sem þurfti. Þá hafi þriggja stiga skot, sem Toms Elvis Leimanis setti undir lokin, verið dýrmætt. „Í svona leik sem er jafn og fram og til baka allan tímann þá fer auðvitað aðeins um mann. Það er lítið sem má út af að bregða til þess að maður lendi nokkrum stigum undir því þá er það strax orðið erfitt. Mér fannst við gera vel hér undir lokin, sérstaklega í seinasta leikhlutanum, þar náum við góðum stoppum sem landa þessu. Við vorum mjög þéttir varnarlega á þessum tímapunkti. Toms setur svo þennan stóra þrist niður á mikilvægum tímapunkti. Það kom okkur fjórum stigum yfir þegar lítið var eftir. Það var risastórt fyrir okkur. Það er oft sem að í svona jöfnum leikjum að þegar maður nær að setja niður skot á réttum tímapunkti og fá mómentið með sér á réttum tíma að þá er það nóg.“ KR-ingar hafa að skipa þeim Toms Elvis Leimanis, Linards Jaunzems og Rinalds Malmanis. Allir koma þeir frá Lettlandi og hafa reynst liðinu drjúgir svo vægt sé til orða tekið. Þeir Rinalds og Toms Elvis gengu báðir til liðs við KR nú í janúar. Hversu ánægður er Jakob með þetta lettneska tríó? „Ég er gríðarlega ánægður með þá. Í fyrsta lagi þá eru þetta toppmenn, flottar persónur og mjög faglegir sem leikmenn. Þeir gera allt rétt, allt sem er beðið um og passa vel inn í hópinn. Þeir koma allir með eitthvað sérstakt að borðinu og ég er mjög ánægður með þá.“
Bónus-deild karla KR UMF Álftanes Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira