Eins leiks bann og sekt fyrir hnefahöggið Sindri Sverrisson skrifar 11. febrúar 2026 16:33 Það sást vel í sjónvarpi þegar Giannis Agravanis missti stjórn á sér og kýldi Craig Moller. Skjáskot/RÚV2 Stjörnumaðurinn Giannis Agravanis fékk eins leiks bann og 40 þúsund króna sekt fyrir hnefahöggið sem hann veitti Craig Moller í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta í síðustu viku.
Mikla athygli vakti að Agravanis skyldi mega spila úrslitaleik bikarsins á laugardaginn, í tapinu gegn KR, þrátt fyrir hegðun sína í undanúrslitaleiknum gegn Keflavík í síðustu viku. Reglur um aga- og úrskurðarnefnd KKÍ eru hins vegar þannig að svona mál eru jafnan aðeins tekin fyrir á næsta vikulega fundi nefndarinnar og er það aðeins í úrslitakeppninni á vorin sem málin ganga hraðar fyrir sig. Þess vegna var það ekki fyrr en í dag sem að niðurstaða fékkst í máli Agravanis sem eins og fyrr segir hlaut eins leiks bann og 40 þúsund króna sekt. Það er í samræmi við grein 13 d) í reglum um aga- og úrskurðarnefnd, þar sem segir að viljandi líkamsmeiðingar eða tilraun til slíks kalli almennt á eins leiks bann og 40 þúsund króna sekt, í efstu deildum og bikarkeppnum meistaraflokka. Agravanis missir af leik Stjörnunnar við Njarðvík annað kvöld í Garðabænum. Uppfært: Í síðustu viku fékk Agravanis sekt upp á 20 þúsund krónur, meðal annars vegna brottrekstrarvillunnar gegn Keflavík. Það er vegna reglu 13 q) sem segir að safni leikmenn 4 tæknivillum á leiktíð þá hljóti þeir 20 þúsund króna sekt. Agravanis fékk tæknivillu og brottrekstrarvillu gegn Keflavík, og brottrekstrarvilla telst sem 2 tæknivillur. Hann var svo með tæknivillu á bakinu frá því fyrr á leiktíðinni. Sektir vegna reglu 13 q) eru ekki í höndum aga- og úrskurðarnefndar sem skýrir hvers vegna þessi refsing var birt viku fyrr en bannið og 40 þúsund króna sektin.
Bónus-deild karla VÍS-bikarinn UMF Grindavík Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira