Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 21:24 Frá leik Tindastóls, hér má sjá David Geks hlaða í skot Vísir/Pawel Tindastóll vann í kvöld frækinn endurkomusigur í spennutrylli í Síkinu á Sauðárkróki gegn Brussels í ENBL deildinni í körfubolta og tryggðu sér heimavallarrétt í útsláttarkeppni deildarinnar. Lokatölur 98-92.
Fyrir leik kvöldsins var Tindastóll nú þegar búið að tryggja sig inn í útsláttarkeppni deildarinnar en var enn á höttunum eftir heimavallarrétt í þeim hluta keppninnar sem efstu átta sæti deildarkeppninnar veita og vissu að sigur í kvöld myndi tryggja heimavallarréttinn Það var á brattann að sækja fyrir Sauðkrækinga snemma leiks í kvöld því Belgarnir mættu tilbúnir í verkefnið og leiddu lengi vel í fyrri hálfleik. Mest leiddi lið Brussels með tuttugu stigum um miðbik annars leikhluta en Stólarnir náðu að saxa hægt og bítandi á það forskot sem stóð að lokum í fjórum stigum 47-51, þegar liðin gengu inn til búningsherbergja í hálfleik. Seinni hálfleikurinn bauð upp á mikla spennu þar sem að liðin skiptust á því að hafa forystuna. Gestirnir frá Belgíu leiddu með einu stigi, 88-89 þegar að rétt rúmar fjórar mínútur eftir lifðu leiks. Stólarnir eru ólseigir í Síkinu, gefast aldrei upp, þeir sneru leiknum sér í hag og unnu að lokum sex stiga sigur 98-92. Sigurinn gerir það að verkum að Tindastóll er nú í fjórða sæti ENBL deildarinnar með fjórtán stig eftir alla sína leiki í deildarkeppninni. Stólarnir eru öruggir með að enda í einu af efstu átta sætum deildarkeppninnar og fá þar með heimavallarrétt í útsláttarkeppninni. Dedrick Basile var stigahæstur í liði Tindastóls í kvöld með 23 stig.
Tindastóll Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira