Risa sigur fyrir Leeds United Aron Guðmundsson skrifar 6. febrúar 2026 21:57 Dominic Calvert Lewin fagnar marki sínu í kvöld Vísir/Getty Leeds United vann afar mikilvægan sigur gegn Nottingham Forest í fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur á Elland Road urðu 3-1 Leeds United í vil.
Liðin voru jöfn að stigum í 16. og 17. sæti fyrir leik kvöldsins, sex stigum frá fallsæti og því ljóst að sigur annars hvors liðsins í kvöld hefði gífurlegt mikilvægi. Heimamenn mættu betur stemmdari til leiks og það dró til tíðinda á 26.mínútu þegar að Jayden Bogle kom Leeds yfir með fyrsta marki leiksins. Heimamenn hömruðu járnið á meðan það var heitt og aðeins fjórum mínútum eftir mark Bogle hafði Noah Okafor tvöfaldað forystu Leeds United með öðru marki liðsins. Leikar stóðu 2-0 Leeds United í vil þegar að fyrri hálfleikur rann sitt skeið en strax á fyrstu mínútum seinni hálfleiksins bætti Dominic Calvert-Lewin við þriðja marki Leeds og gestirnir frá Skírisskógi þar með sigraðir. Lorenzo Lucca náði inn sárabótarmarki fyrir Nottingham Forest undir lok venjulegs leiktíma og minnkaði muninn í stöðuna 3-1 en nær komust gestirnir ekki. Sigur Leeds United sér til þess að liðið er nú með 29 stig í 16.sæti, þremur stigum meira en Nottingham Forest og komið níu stigum frá fallsæti. Þetta var sjöundi sigur Leeds United á tímabilinu í deildinni, sex þessara sigra hafa komið á heimavelli, þar hafa þeir verið erfiðir við að eiga.
Enski boltinn Leeds United Nottingham Forest Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Fleiri fréttir Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Sjá meira