Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2026 17:44 Giannis Antetokounmpo þarf að vera áfram hjá Milwaukee Bucks. Getty/Patrick McDermott Forráðamenn Milwaukee Bucks hafa tjáð öðrum félögum í NBA-deildinni að Giannis Antetokounmpo sé ekki að fara neitt. Of mikil kurteisi er sögð hamla honum.
Félagaskiptaglugginn í deildinni lokast í kvöld og hefur orðrómur verði uppi um risaskipti sem fælu í sér að Antetokounmpo færi frá Bucks. Nú er ljóst að ekkert verður af þeim í dag og að Grikkinn heldur kyrru fyrir út þessa leiktíð, samkvæmt Shams Charania hjá ESPN. Antetokounmpo glímir við meiðsli í kálfa og óvíst hvenær hann snýr aftur til keppni. Hann hefur tvívegis verið valinn MVP, eða verðmætasti leikmaður, NBA-deildarinnar og er sagður vilja komast í burtu frá Bucks sem eru aðeins í 12. sæti austurdeildarinnar og ekki á leið í úrslitakeppnina sem stendur. Tilraunir hans til að komast í burtu – lið á borð við Golden State Warriors, Minnesota Timberwolves, Miami Heat og New York Knicks hafa verið nefnd í þessu samhengi – hafa hins vegar ekki borið árangur. Kendrick Perkins thinks the Bucks organization is holding Giannis hostage:"Right now, this is on the Milwaukee Bucks. Somebody need to actually call the police. I want an investigation because they holding the man hostage" pic.twitter.com/ypJY08u6AJ— NBA Courtside (@NBA__Courtside) February 4, 2026 „Giannis er að reyna að sýna kurteisi í þessu. Hann hefur rætt við þetta fólk bakvið luktar dyr og látið vita að hann vilji skipti. Af hverju láta þeir ekki verða af því?“ spurði Kendrick Perkins, fyrrverandi NBA-leikmaður, í NBA Countdown á ESPN og var reiður yfir stöðunni sem Grikkinn er í. „Milwaukee Bucks ber ábyrgð á þessu. Það þarf einhver að hringja í lögregluna. Ég vil fá rannsókn vegna þess að það er verið að halda þessum manni í gíslingu,“ sagði Perkins og taldi það ekki eiga að bitna á Antetokounmpo að hann færi ekki í drastískar aðgerðir til að losna frá sínu félagi.
NBA Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn Fleiri fréttir Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ Sjá meira