„Don Orri Steinn Óskarsson“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2026 08:21 Orri Steinn Óskarsson fagnar hér sigurmarki sínu fyrir Real Sociedad í gærkvöldi. Getty/Ricardo Larreina Orri Steinn Óskarsson tryggði í gær Real Sociedad sæti í undanúrslitum spænska konungsbikarsins þegar hann tryggði liðinu 3-2 útisigur á Alavés með marki tíu mínútum fyrir leikslok.
Íslenski landsliðsframherjinn er að komast aftur af stað eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Orri Steinn kom inn á sem varamaður á 74. mínútu þegar Real Sociedad var 2-1 undir í leiknum. Gonçalo Guedes jafnaði metin tveimur mínútum síðar og innan sex mínútna var Orri búinn að koma sínu liði yfir. Það reyndist síðan vera sigurmarkið í leiknum. Þetta var smá uppreisn æru fyrir Orra því í sextán liða úrslitunum var hann tekinn af velli mínútu eftir að honum var skipt inn á völlinn en það kom til vegna þess að meiðsli tóku sig upp að nýju. Nú var Orri aftur á móti tilbúinn og hann var fljótur að minna á sig og mikilvægi sitt fyrir Baskafélagið. Þetta var jafnframt fyrsta mark hans fyrir Real Sociedad í 165 daga eða síðan að hann skoraði á móti Espanyol í deildarleik 24. ágúst á síðasta ári. Eftir leikinn tók Orri Steinn upp stutta kveðju til stuðningsmanna Real Sociedad þar sem hann talaði á spænsku. Okkar maður er greinilega að reyna að læra spænskuna. Real Sociedad var mjög ánægt með hetjuna sína og skrifaði við myndbandið „Don Orri Steinn Óskarsson“ eins og sjá má hér fyrir neðan. 9️⃣ Don Orri Steinn Óskarsson ⭐️ pic.twitter.com/FKPk8f5KHH— Real Sociedad Fútbol (@RealSociedad) February 4, 2026
Spænski boltinn Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira