Hörður Axel: Ætlum að gera allt til þess að vinna bikarinn Andri Már Eggertsson skrifar 4. febrúar 2026 19:25 Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með sigurinn Hulda/Vísir Keflavík er komið í úrslit VÍS-bikarsins eftir fimm stiga sigur á Hamar/Þór 82-77. Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með að vera kominn í úrslit. „
Við héldum áfram í fjörutíu mínútur. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og þær komu alltaf til baka og þær eru lið sem heldur alltaf áfram. Við náðum þessu upp í þrettán stig og þetta var ákveðið hark þessi sigur,“ sagði Hörður Axel í viðtali við Vísi eftir leik. Hamar/Þór tók frumkvæðið í leiknum og komst tíu stigum yfir í fyrsta leikhluta. Aðspurður út í byrjun liðsins sagði Hörður að hún væri hluti af leiknum. „Það er eðli leiksins að það komi áhlaup fram og til baka. Við töluðum mikið um það fyrir leik að við værum að fara spila í fjörutíu mínútur sama hvernig leikurinn yrði þyrftum við alltaf að halda áfram og halda ákefðinni og spila allar fjörutíu mínúturnar af krafti sama hver staðan væri í leiknum.“ Keflavík var undir í hálfleik og Ana Clara Paz og Jovana Markovic höfðu gert 26 af 38 stigum Hamars/Þórs en Hörður var ánægður með áherslubreytingar í seinni hálfleik. „Við vorum í bullandi veseni með Ana Clara Paz í fyrri hálfleik sérstaklega. Við náðum að breyta í síðari hálfleik og Thelma Dís gerði rosalega vel á hana varnarlega en svo komu aðrir leikmenn hjá þeim sem stigu upp. Hamar/Þór er mun betra lið en taflan gefur til kynna og þær hafa sýnt það.“ Keflavík byrjaði fjórða leikhluta betur og gerði fyrstu sjö stigin og komst þrettán stigum yfir 68-55 en þá tók Hákon Hjartarson, þjálfari Hamars/Þórs, leikhlé. „Þetta er svo fljótt að breytast í þessu. Við settum tvo þrista í röð og þá var augnablikið með okkur sem varð til þess að Hákon þurfti að taka leikhlé. Þetta er partur af leiknum og það eru áhlaup í þessu.“ Hörður Axel er fullur tilhlökkunar að spila bikarúrslitaleik í Smáranum á laugardaginn og sagði að liðið myndi gefa allt í þann leik. „Tilfinningin er mjög góð að spila til úrslita á laugardaginn. Þetta var eitt af okkar markmiðum að komast í bikarúrslit. Við ætlum okkur að gera allt til að vinna þá líka,“ sagði Hörður Axel að lokum.
Keflavík ÍF VÍS-bikarinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Fleiri fréttir Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Valskonur styrkja sig Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Hágrét þegar fyrsti risatitillinn var í höfn Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Skilja vináttuna eftir utan vallar Ollie Kane kynntur til leiks Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Skoraði sneggstu þrennu sögunnar í sturluðum sigri „Hann breytti kúlturnum“ Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Dagskráin í dag: Heldur Antonelli uppteknum hætti? Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sjá meira