Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. febrúar 2026 06:47 Marius Borg Høiby er sonur Mette-Marit, eiginkonu Hákonar krónprins, úr fyrra sambandi. EPA Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, játaði fyrir dómi í gær að hafa rofið skilorð, að hafa brotið gegn fíkniefnalöggjöfinni og ýmis umferðarbrot. Hann neitaði hins vegar sök í fjórum ákæruliðum er vörðuðu nauðgun, brot í nánu sambandi og að hafa myndað kynfæri kvenna án vitundar þeirra.
Lögregluyfirvöld í Noregi telja að Høiby, 29 ára, hafi beitt konu kynferðisofbeldi í eftirpartý sem haldið var í Skaugum, sem er formlegt aðsetur Hákonar krónprins og Mette-Marit. Konan bar vitni í gær og lýsti því hvernig hún og Høiby hefðu haft samfarir eftir að hann elti hana inn á salerni. Þau hefðu hins vegar hætt eftir skamma stund og farið aftur inn í partýið. Hún vissi ekki hvað hefði gerst eftir það en hefði síðar verið gert viðvart af lögreglu að myndskeið hefðu fundist á tölvu Høiby þar sem hann sést káfa á henni þar sem hún liggur á sófa og virðist ekki í ástandi til að geta spornað gegn verknaðinum. Lögmaður Høiby sagði skjólstæðing sinn hins vegar „saklausan dreng“ og ítrekaði að ekkert sem ætti sér stað utan dómsalsins, til að mynda fjölmiðlaumfjöllun um málið, skipti máli. Það eina sem skipti máli væri það sem fram kæmi fyrir dóminum. Þá sagði hún að meint fórnarlömb ættu það öll sameiginlegt að hafa stundað kynlíf með Høiby áður en meint brot hefðu átt sér stað. Bæði áfengi og fíkniefni hefðu átt hlut að máli. Búist er við því að réttarhöldin muni standa yfir í um sjö vikur.
Noregur Mál Mariusar Borg Høiby Kynferðisofbeldi Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira