Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 13:43 Hinn 27 ára Marius Borg Høiby er sonur Mette-Marit, eiginkonu Hákonar krónprins, úr fyrra sambandi. EPA Héraðsdómur í Osló úrskurðaði í dag norska stjúpprinsinn Marius Borg Høiby, son norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, í gæsluvarðhald til 2. mars. Farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir Høiby, sem var handtekinn aftur í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás, hótun með hnífi og brot gegn nálgunarbanni. Þar að auki hefjast réttarhöld yfir Høiby á morgun vegna fjölda annarra mála, en hann sætir ákæru vegna 38 meintra brota á lögum, meðal annars fyrir ofbeldi í nánu sambandi, nauðgun og fleiri ofbeldisbrot.
Samkvæmt umfjöllun norska ríkisútvarpsins NRK hófust réttarhöld klukkan þrjú síðdegis að staðartíma í Osló í dag þar sem dómstóllinn tók afstöðu til gæsluvarðhalds yfir Høiby sem farið var fram á vegna hættu á endurteknum brotum. Þá hefjast lengri réttarhöld á morgun sem gert er ráð fyrir að standi yfir í sjö vikur vegna fjölda annarra fyrri brota sem hann er ákærður fyrir. Høiby neitar sök í þeim ákæruliðum sem varða alvarlegustu brotin, þar á meðal fyrir ofbeldi í nánu sambandi og fleiri ofbeldisbrot. Lögreglan fer fram á síbrotagæslu yfir norska stjúp-prinsinum, en ekki er gert ráð fyrir að hann verði sjálfur viðstaddur réttarhöldin í dag. Sjá einnig: Ákærður fyrir fjórar nauðganir Lögreglan hefur staðfest að Marius Borg Høiby hafi verið handtekinn í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás, ógnandi tilburði með hnífi og brot gegn nálgunarbanni, og að farið hafi verið fram á síbrotagæslu yfir honum sökum þessa. Samkvæmt upplýsingum NRK er Høiby grunaður um að brjóta nálgunarbann gegn Frogner-konunni svokölluðu, en fyrr í þessum mánuði var hann kærður fyrir frekari brot á nálgunarbanni. Síðustu dagar hafa verið stormasamir hjá norsku konungsfjölskyldunni en Mette-Marit, móðir Mariusar, hefur verið í kastljósi fjölmiðla vegna samskipta hennar við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Uppfært kl. 15:30 Fréttin var uppfærð eftir að dómstóll í Osló tók afstöðu til gæsluvarðhalds yfir Mariusi Borg Høiby.
Mál Mariusar Borg Høiby Noregur Kóngafólk Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira