Krútteyjurnar Ischia og Sikiley: Ástu leist ekki á einnar evru húsin Stefán Árni Pálsson skrifar 19. janúar 2026 12:00 Kolbrún tekur þátt í skipulagningu á ferðum til Ischia á vegum Áfram Flakk, Ásta Sigurðardóttir ævintýrakona fór fyrir fáeinum árum til Sikileyjar til að skoða einnar evru hús, en endaði á því að kaupa sér ekki hús á eina evru. Enda sá hún fram á að það yrði á endanum dýrara og tímafrekara að gera einnar evru hús íbúðarhæft, heldur en að kaupa dýrari eign. Sem hún gerði og hefur nú gert upp stórt hús í hjarta Salemi, sem er fjallaþorp á miðri Sikiley.
Lóa Pind Aldísardóttir heimsækir hana til Sikileyjar í 1. þætti af sjöundu þáttaröð af Hvar er best að búa? sem hóf göngu sína á streymiveitunni Sýn+ í dag. Hann verður seinna sýndur í opinni dagskrá Sýnar. Í fyrsta þætti heimsækir hún einnig Kolbrúnu Dögg Eggertsdóttur sem féll fyrir ítölskum pilti þegar hún starfaði sem au-pair í London fyrir allmörgum árum. Það leiddi til þess að hún býr nú, ásamt fjölskyldu sinni, á einhverri krúttlegustu eyju Ítalíu, Ischiu, þar sem einungis um 60 þúsund manns búa árið um kring en fjöldi ferðamanna heimsækir á hverju ári. Milli Njarðvíkur og Póllands Í þáttaröðinni heimsækir Lóa alls konar fólk, m.a. unga frumkvöðla sem ákváðu að setjast að nálægt alþjóðaflugvöllum til að auðvelda ferðalög milli heimsálfa, kjarnafjölskyldu úr Hafnarfirði sem hafnaði íslenska lánakerfinu og eiga nú skuldlaust hús í spænskri sveit, körfuboltafjölskyldu sem hefur verið í fjarbúð milli ótal landa og deilir nú tíma sínum milli Njarðvíkur og Póllands, ungri konu sem stofnaði veislutertufyrirtæki í Köben og konu á miðjum aldri sem fann ástina í örmum Spánverja á Djúpavogi sem leiddi þau til Andalúsíu þar sem við fylgjumst með brúðkaupi þeirra. Og loks kynnumst við hjónum á besta aldri sem höfðu kjark til að setjast að í alræmdri stórborg í Nígeríu umkringd vopnuðum öryggisvörðum. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá brot úr þættinum. Klippa: Ástu leist ekki á einnar evru húsin Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru Ívar Kristján Ívarsson og Hákon Pálsson, klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn.
Hvar er best að búa? Íslendingar erlendis Ítalía Ástin og lífið Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira