Meiðslamartröð Orra um að kenna en ekki leiðinlegum þjálfara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 09:33 Orri Steinn Óskarsson missti af mjög mörgum leikjum á árinu 2025 og árið 2026 byrjar ekki nógu vel. Getty/Alex Nicodim Íslenska framherjanum Orra Steini Óskarssyni var skipt út af í bikarleik Real Sociedad í spænska bikarnum í gærkvöldi, skömmu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Margir hneyksluðust á þessari skiptingu en nú vitum við aðeins
meira
Real Sociedad endaði á því að vinna leikinn í vítaspyrnukeppni, 4-3, en leiknum sjálfum lauk með 2-2 jafntefli. Utan frá leit út fyrir að íslenski landsliðsfyrirliðinn hefði verið tekinn af velli til að koma jafnvægi á liðið með því að setja miðvörðinn Jon Martín inn á í staðinn. Pellegrino Matarazzo, bandaríski þjálfari Real Sociedad, sagði frá því á blaðamannafundi að Íslendingurinn hefði meiðst og því fengið skiptingu stuttu eftir að hann kom inn á völlinn. Mundo Deportivo segir frá. Óskarsson entró en el 88', la Real empató ¡y Matarazzo le dejó sin prórroga!#RealSociedadhttps://t.co/WmpIa3iXIw— Edición Gipuzkoa MD (@Gipuzkoa_MD) January 13, 2026 Bandaríski þjálfarinn notaði síðustu skiptinguna á 88. mínútu og setti Íslendinginn inn á völlinn fyrir hinn meidda Duje Caleta-Car í leit að jöfnunarmarki. Orri snerti boltann rétt fyrir mark Igors Zubeldia þar sem Real tryggði sér framlengingu en hana spilaði Orri þó ekki. Á blaðamannafundi eftir leik útskýrði bandaríski þjálfarinn að hann hefði þurft að jafna út áhættuna sem hann tók áður en bætti við að Íslendingurinn væri meiddur því hann hefði meitt sig á þessum stutta tíma sínum inni á vellinum. Þetta er annað áfall fyrir okkar mann og þetta hefur verið mjög erfitt tímabil hjá honum. Samkvæmt Matarazzo tognaði Orri á vöðva í hlaupi og það var nauðsynlegt að taka hann af velli. Meiðslamartröð Orra ætlar því engan endi að taka.
Spænski boltinn Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira