Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. janúar 2026 10:04 Ragnheiður Steindórsdóttir hefur verið að jafna sig á spítala á Málaga undanfarnar vikur en kemur heim til Íslands í dag. Leikkonan Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni milli jóla og nýárs og hefur legið á spítala í Málaga síðan. Hún kemur heim til Íslands í læknisfylgd í dag og hefur í kjölfarið endurhæfingu.
Börn Ragnheiðar, Steindór Grétar Jónsson og Margrét Dóróthea Jónsdóttir, greindu frá fregnunum í Facebook-færslu í gærmorgun. Þar hvöttu þau almenning til að styrkja Vonarbrú, almannaheillafélag sem hefur styrkt stríðshrjáðar fjölskyldur á Gasa, meðan Ragnheiður jafnar sig. „Hún varð því miður fyrir því óláni að missa máttinn þegar hún var ein í gönguferð í sveitinni á Spáni á milli jóla og nýárs. Á ótrúlegan hátt náði hún að bjarga sér, vekja athygli íbúa á svæðinu og fá hjálp. Hún var flutt á spítala í Malaga í fylgd með Steindóri og þar kom í ljós að hún hafði fengið heilablóðfall,“ segir í færslunni. „Mamma er alveg skýr í kollinum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana en þarf tíma og þjálfun til að endurheimta kraft í líkamanum,“ segir einnig. Hlakkar til að takast á við endurhæfinguna Ragnheiður verður flutt til Íslands í fylgd með lækni í dag og Steindór, syni sínum, og sé spennt að takast á við endurhæfinguna framundan. „Það verður líka gott að geta talað við heilbrigðisstarfsfólk á íslensku þó að mömmu hafi nánast tekist að læra spænsku frá grunni á þessum tveimur vikum á sjúkrahúsinu,“ segir í færslunni. Ragnheiður Steindórsdóttir á langan leiklistarferil að baki. Allir sem þekki Ragnheiði viti að hún hefur verið virk, öflug og lífsglöð og hafi látið sig málefni Palestínu varða með almannaheillafélaginu Vonarbrú. „Með ósérhlífnu starfi hefur henni tekist með samstarfsfólki sínu og þeim sem styrkt hafa félagið að veita fjölda fjölskyldna á Gaza lífsbjörg. Við vitum að það mundi gleðja hana ef Vonarbrú fengi góð fjárframlög næstu vikurnar til að bæta upp fyrir fjarveru hennar. Við hvetjum því öll til að styrkja stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gaza með því að leggja inn á reikning almannaheillafélagsins Vonarbrúar,“ segir einnig í færslunni og fylgja þar reikningsupplýsingar um félagið með. Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan:
Íslendingar erlendis Spánn Heilbrigðismál Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Sjá meira