Samstaða í ferðaþjónustu aldrei mikilvægari Halldór Óli Kjartansson skrifar 13. janúar 2026 07:02 Öflugt markaðsstarf er lykilþáttur í því að stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, ferðaþjónusta, geti haldið áfram að vaxa og dafna. Í samkeppni við önnur lönd og önnur svæði á Norðurslóðum er mikilvægt að halda því á lofti sem gerir Ísland að einstökum áfangastað. Tækifæri eru til staðar í vetrarferðaþjónustu um allt land til að nýta betur þá fjárfestingu sem bæði hið opinbera og einkageirinn hafa ráðist í á undanförnum árum. Þannig eykst verðmætasköpun allan ársins hring. Frumkvöðlar í ferðaþjónustu og öflugt fólk vinnur að framgangi hennar á hverjum einasta degi. Þau leggja mikinn metnað í allt sitt markaðsstarf en til þess að árangurinn verði enn betri er mikilvægt að stjórnvöld leggi enn meiri áherslu á að kynna áfangastaðinn Ísland á erlendum mörkuðum. Í janúar á hverju ári er haldinn stærsti viðburður íslenskrar ferðaþjónustu, Mannamót Markaðsstofa landshlutanna. Hann hefur sannað sig sem vettvangur fyrir framþróun, nýsköpun, aukin og bætt tengsl innan ferðaþjónustu. Öll fyrirtæki í ferðaþjónustu á landsbyggðinni hafa þar tækifæri til að sýna hvað þau bjóða upp á og ferðaskrifstofur af höfuðborgarsvæðinu geta sent starfsfólk sitt á sýninguna til að „fara hringinn“ í kringum landið á nokkrum klukkutímum til að skoða úrvalið. Þar sýna landsbyggðarfyrirtækin metnað í sinni markaðssetningu og samstöðu sem skilar árangri. Þó þau séu í samkeppni þá hafa þau öll sama markmiðið; að taka vel á móti ferðafólki og tryggja að upplifun þeirra verði einstök. Samstaðan og slagkrafturinn skilar þannig ávinningi fyrir allt landið. Ferðaþjónustuvikan hefst þriðjudaginn 13. janúar og lýkur með Mannamótum þann 15. janúar. Fólk sem starfar í ferðaþjónustu eða tengist henni er hvatt til þess að mæta á viðburði í vikunni, efla fagleg tengsl og sækja upplýsingar um allt það sem hæst ber í íslenskri ferðaþjónustu. Höfundur er starfandi framkvæmdastjór Markaðsstofu Norðurlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Sjá meira
Öflugt markaðsstarf er lykilþáttur í því að stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, ferðaþjónusta, geti haldið áfram að vaxa og dafna. Í samkeppni við önnur lönd og önnur svæði á Norðurslóðum er mikilvægt að halda því á lofti sem gerir Ísland að einstökum áfangastað. Tækifæri eru til staðar í vetrarferðaþjónustu um allt land til að nýta betur þá fjárfestingu sem bæði hið opinbera og einkageirinn hafa ráðist í á undanförnum árum. Þannig eykst verðmætasköpun allan ársins hring. Frumkvöðlar í ferðaþjónustu og öflugt fólk vinnur að framgangi hennar á hverjum einasta degi. Þau leggja mikinn metnað í allt sitt markaðsstarf en til þess að árangurinn verði enn betri er mikilvægt að stjórnvöld leggi enn meiri áherslu á að kynna áfangastaðinn Ísland á erlendum mörkuðum. Í janúar á hverju ári er haldinn stærsti viðburður íslenskrar ferðaþjónustu, Mannamót Markaðsstofa landshlutanna. Hann hefur sannað sig sem vettvangur fyrir framþróun, nýsköpun, aukin og bætt tengsl innan ferðaþjónustu. Öll fyrirtæki í ferðaþjónustu á landsbyggðinni hafa þar tækifæri til að sýna hvað þau bjóða upp á og ferðaskrifstofur af höfuðborgarsvæðinu geta sent starfsfólk sitt á sýninguna til að „fara hringinn“ í kringum landið á nokkrum klukkutímum til að skoða úrvalið. Þar sýna landsbyggðarfyrirtækin metnað í sinni markaðssetningu og samstöðu sem skilar árangri. Þó þau séu í samkeppni þá hafa þau öll sama markmiðið; að taka vel á móti ferðafólki og tryggja að upplifun þeirra verði einstök. Samstaðan og slagkrafturinn skilar þannig ávinningi fyrir allt landið. Ferðaþjónustuvikan hefst þriðjudaginn 13. janúar og lýkur með Mannamótum þann 15. janúar. Fólk sem starfar í ferðaþjónustu eða tengist henni er hvatt til þess að mæta á viðburði í vikunni, efla fagleg tengsl og sækja upplýsingar um allt það sem hæst ber í íslenskri ferðaþjónustu. Höfundur er starfandi framkvæmdastjór Markaðsstofu Norðurlands.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar