Þriðji Kaninn mættur til bjargar nýliðunum Sindri Sverrisson skrifar 10. janúar 2026 23:15 Brandon Averette var ekki lengi án vinnu, eftir að hafa yfirgefið Njarðvík. Vísir/Anton Nýliðar Ármanns eru í erfiðum málum á botni Bónus-deildar karla í körfubolta en hafa nú fengið til sín bandarískan leikmann sem kynnst hefur deildinni vel í vetur.
Ármenningar hafa nefnilega samið við hinn 28 ára gamla Brandon Averette um að spila með liðinu út leiktíðina. Averette kemur til Ármanns eftir að Njarðvíkingar ákváðu á dögunum að segja upp samningi við hann. Hann hefur skorað 17,8 stig að meðaltali í leik, í þrettán leikjum fyrir Njarðvík í vetur, og gefið 5,1 stoðsendingar og tekið 4,1 fráköst. Heimilt er að hafa einn bandarískan leikmann í hverju liði og hóf Ármann tímabilið með Dibaji Walker í sínum röðum en hann fór svo til ÍA eftir fjóra leiki, og var reyndar einnig leystur undan samningi þar nú um áramótin. Vonterius Woolbright kom svo til Ármanns í desember, tók þátt í báðum sigurleikjum liðsins og lék alls fimm leiki en skoraði að meðaltali aðeins 8 stig í leik, gaf 4 stoðsendingar og tók 5,4 fráköst. Hann er nú farinn frá félaginu. Næsti leikur Ármanns er gegn Val í Laugardalshöllinni á fimmtudagskvöld. Nýliðarnir eru eins og fyrr segir með fjögur stig á botni Bónus-deildarinnar en aðeins tveimur stigum á eftir ÍA og fjórum á eftir Þór Þ. og Njarðvík.
Bónus-deild karla Ármann Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira