Jólagleði í Garðinum Valur Páll Eiríksson skrifar 25. desember 2025 19:54 Jaylon Tyson reynir að verjast Jalen Brunson sem var stigahæstur Knicksara, að venju. Pamela Smith/Getty Images Það var engin gleði hjá New York Knicks sem þurfti að þola tap í hádegisleiknum á jóladag í Madison Square Garden í stóra eplinu.
Fimm leikir fara fram í NBA-deildinni á jóladag og verða langt fram eftir nóttu. Cleveland Cavaliers var í heimsókn hjá New York Knickerbockers í fyrsta leiknum sem hófst á hádegi að staðartíma. Þar voru að mætast tveir af stigahæstu leikmönnum deildarinnar; Jalen Brunson í Knicks og Donovan Mitchell í Cavaliers. Gestirnir frá Cleveland byrjuðu betyr og röðuðu svoleiðis inn stigum í fyrsta leikhlutanum. Staðan að honum loknum var 38-23 fyrir Cavaliers. Heimamenn svöruðu hins vegar fyrir sig og leiddu þegar hálfleiksflautið gall, staðan 60-58 fyrir Knicks. THERE'S A REASON HIS NICKNAME IS CAPTAIN CLUTCH.JALEN BRUNSON PUTS NYK UP 2 WITH 1:05 LEFT.WATCH HERE: https://t.co/nu1j9ysj0u pic.twitter.com/2pRvIudXnB— NBA (@NBA) December 25, 2025 Gestirnir voru með frumkvæðið í seinni hálfleik og náðu 17 stiga forystu snemma í fjórða leikhluta, 103-86 Knicks komust hins vegar á siglingu og söxuðu jafnt og þétt á forskotið með Brunson fremstan í flokki. Þeir reyndust sterkari á lokakaflanum og unnu frækinn 126-124 endurkomusigur. Brunson hafði því betur gegn Mitchell en stigakeppni þeirra lauk með jafntefli. Báðir skoruðu 34 stig fyrir sitt lið í kvöld en Knicks unnu góðan heimasigur og New York-búar fóru glaðir heim í jólaboðin.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira