Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2025 11:19 Eyjólfur Gíslason og Þóra Gréta Þórisdóttir. Þóra Gréta Þórisdóttir hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar hjá Þjóðleikhúsinu og Eyjólfur Gíslason í stöðu mannauðsstjóra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhúsinu. Þar segir ráðið sé í stöðurnar í kjölfar skipulagsbreytinga sem hugsaðar séu til að efla leikhúsið og sækja fram en á dögunum hafi verið samþykkt lög frá Alþingi um að ný ópera hæfi starfsemi innan veggja Þjóðleikhússins. Þá hafi einnig verið tilkynnt um nýbyggingu með nýju sviði. „Skipulagsbreytingarnar gera leikhúsið betur í stakk búið til að mæta þessum spennandi verkefnum og auka skilvirkni. Þóra Gréta Þórisdóttir var ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar í nóvember 2025. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af stjórnun og fjármálastjórn. Hún var nú síðast framkvæmdastjóri fjármála hjá Nóa Síríus og þar á undan í mörg ár hjá Coca-Cola Europacific Partners, bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Hún situr líka í stjórn RARIK og Samhjálpar. Þóra lauk meistaranámi í stefnumiðaðri stjórnun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og lærði auk þess verðbréfaviðskipti. Eyjólfur Gíslason er nýr mannauðsstjóri Þjóðleikhússins og kemur með verðmæta reynslu að leikhúsinu. Síðastliðin ár hefur hann verið deildarstjóri á flugrekstrarsviði hjá Icelandair þar sem mannauðsmál voru stór hluti af starfi deildarinnar. Hann lauk meistaraprófi í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst með áherslu á mannauðsstjórnun. Einnig hefur hann starfað sem fjölmiðlafulltrúi, ráðgjafi og fyrirlesari. Þóra hefur þegar hafið störf en Eyjólfur mun bætast í hópinn fljótlega á nýju ári,“ segir í tilkynnunni. Í tilkynningunni segir að starfsfólk hlakki líka til að taka vel á móti nýjum óperustjóra og að gert sé ráð fyrir því að skipað verði í stöðuna innan skamms.
Menning Þjóðleikhúsið Þjóðaróperan Vistaskipti Leikhús Tengdar fréttir Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Jóhann Páll Jóhannsson settur menningarráðherra þegar kemur að ráðningu nýs óperustjóra hefur boðað þrjá umsækjendur í viðtal. Þrír hafa verið metnir hæfir til að gegna stöðunni en til stóð að skipa í stöðuna fyrir 15. nóvember síðastliðinn. 13. desember 2025 16:00 Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Hæfnisnefnd hefur metið þrjá hæfa í hlutverk óperustjóra við Nýja þjóðaróperu. Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur lýst sig vanhæfan í málinu og mun Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra taka ákvörðunina. 21. nóvember 2025 15:18 Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Sjá meira
Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Jóhann Páll Jóhannsson settur menningarráðherra þegar kemur að ráðningu nýs óperustjóra hefur boðað þrjá umsækjendur í viðtal. Þrír hafa verið metnir hæfir til að gegna stöðunni en til stóð að skipa í stöðuna fyrir 15. nóvember síðastliðinn. 13. desember 2025 16:00
Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Hæfnisnefnd hefur metið þrjá hæfa í hlutverk óperustjóra við Nýja þjóðaróperu. Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur lýst sig vanhæfan í málinu og mun Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra taka ákvörðunina. 21. nóvember 2025 15:18