Viðskipti innlent

Fjár­mála­ráðu­neytið: „Ekki tapa peningum“

Árni Sæberg skrifar
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar

Eigendur húsbréfa á pappír, sem gefin voru út af Íbúðalánasjóði fyrir árið 2004, eru hvattir til að leysa þau út gegn greiðslu hjá Fjársýslu ríkisins frá og með deginum í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins undir yfirskriftinni „Ekki tapa peningum - leystu út gömlu húsbréfin“.

Bréfin bera hvorki vexti né verðbætur

Þar segir að húsbréf sem gefin voru út af Íbúðalánasjóði/ÍL-sjóði fyrir árið 2004 hafi verið dregin út á grundvelli útdráttarheimildar. Sérstök athygli sé vakin á því að bréfin beri ekki lengur vexti eða verðbætur. Eigendur þurfi að framvísa skilríkjum og sé verið  að innleysa bréf fyrir dánarbú þurfi umboð að fylgja. Nauðsynlegt sé að framsalsröðin á bréfinu sé óslitin.

Móttaka Fjársýslunnar sé í Katrínartúni 6, 105 Reykjavík og sé opin mánudaga til fimmtudaga, milli 9 og 15 og á föstudögum milli 9 og 13.

Stefna að slitum sjóðsins um áramót

Frá því vorið 2022 hafi verið unnið markvisst að því að skapa skilyrði til að hægt sé að gera upp skuldir ÍL-sjóðs og slíta honum. Með samþykki meirihluta eigenda HFF íbúðabréfa vorið 2025 og samþykkt fjáraukalaga hafi uppgjör við alla eigendur HFF íbúðabréfa farið fram þar, sem þeir hafi tekið við samblandi af eignum ÍL-sjóðs auk ríkisskuldabréfa og gjaldeyris frá ríkissjóði. 

Í framhaldi uppgjörsins hafi eigendum húsnæðisbréfa verið boðið að skipta á þeim og ríkisskuldabréfum auk þess sem eldri húsbréfaútgáfur hafi verið í sérstöku uppgjörsferli þar sem heimildir til útdráttar hafi verið nýttar. Stefnt sé að því að lögaðilinn ÍL-sjóður verði lagður niður um áramótin 2025-2026 og óskað hafi verið eftir lagaheimild til að fella niður lög um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs. Við brottfall laganna taki ríkissjóður við öllum eftirstandandi réttindum og skyldum ÍL-sjóðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×