Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2025 10:33 Phil Foden skoraði sitt tíunda mark á tímabilinu gegn Crystal Palace. getty/Vince Mignott Þótt Phil Foden hafi skorað í 0-3 útisigri Manchester City á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær gagnrýndi knattspyrnustjóri liðsins, Pep Guardiola, enska landsliðsmanninn eftir leikinn.
City minnkaði forskot Arsenal á toppi deildarinnar niður í tvö stig með sigrinum á Selhurst Park. Erling Haaland skoraði tvívegis og Foden var einnig á skotskónum og gerði sitt sjötta mark í síðustu fjórum deildarleikjum. Þrátt fyrir markið hafði Guardiola ýmislegt við frammistöðu Fodens að athuga. „Phil var ekki góður í dag [í gær] þrátt fyrir að fólk gæti litið það öðrum augum,“ sagði Guardiola eftir leikinn. „Hann var ekki upp á sitt besta og tapaði boltanum oft. Hann var svo bráður í ákvörðunum sem hann tók og stressaður. Hann verður að spila, halda boltanum, tengja við aðra og sprengja síðan upp eins og hann einn getur með mörkum og stoðsendingum.“ Þrátt fyrir að Guardiola hafi verið ósáttur við hvað Foden gerði við boltann í leiknum gegn Palace hrósaði hann honum fyrir dugnað án boltans. „Hann verður að vera rólegri. Hann vill alltaf gera vel og hjálpa öðrum,“ sagði Guardiola. „En hvernig hann spilaði vörnina, pressaði og hljóp til baka var ótrúlegt. Þetta var ein hans besta varnarframmistaða. Hann hljóp kannski mest allra í liðinu og skoraði því nálægt vítateignum er hann ótrúlegur.“ City hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki sína og skorað samtals fjórtán mörk í þeim. Næsti leikur City er gegn Brentford á Etihad í enska deildabikarnum á miðvikudaginn.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira