Óheppnin eltir Éder Militao: Frá í nokkra mánuði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2025 18:15 Éder Militao var sárþjáður þegar hann yfirgaf völlinn í leik Real Madrid og Celta Vigo í gær. getty/Maria Gracia Jimenez Éder Miliato, varnarmaður Real Madrid, meiddist í tapinu fyrir Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í gær og verður frá keppni næstu 3-4 mánuðina.
Real Madrid tapaði fyrir Celta Vigo á Santiago Bernabéu í gær, 0-2. Militao var í byrjunarliði Madrídinga en fór meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleik. Antonio Rüdiger tók stöðu hans. Í ljós kom að Militao meiddist illa aftan í læri og verður frá keppni í allt að fjóra mánuði. Militao hefur verið afar óheppinn með meiðsli en hann sleit krossband í hné tvö ár í röð og þetta er þriðja tímabilið í röð sem Brassinn verður fyrir alvarlegum meiðslum. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Xabis Alonso, knattspyrnustjóra Real Madrid, en hann þykir vera valtur í sessi eftir misjafnt gengi undanfarnar vikur. Samkvæmt El Mundo héldu hæstráðendur hjá Real Madrid neyðarfund eftir tapið fyrir Celta Vigo og talið er að ef illa fer hjá liðinu gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn verði Alonso látinn taka pokann sinn. Militao kom til Real Madrid frá Porto 2019. Hann hefur leikið tæplega tvö hundruð leiki fyrir Real Madrid sem er í 2. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona.
Spænski boltinn Mest lesið England - Ísland 2-0 | Tveggja marka tap gegn Evrópumeisturunum Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Enski boltinn Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport Ætla að gefa leikinn frekar en að spila án stuðnings Fótbolti Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Fleiri fréttir Depay með tífalt hærri laun en Lingard Ætla að gefa leikinn frekar en að spila án stuðnings England - Ísland 2-0 | Tveggja marka tap gegn Evrópumeisturunum Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Engar breytingar gegn Englendingum Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Valverde bjargaði Real í blálokin Leiðin bein þó það vanti Kane Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Robertson sá um að hefna Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Evrópumeistararnir þurfi að vera upp á sitt besta til að vinna Ísland Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina „Konan mín gagnrýndi það sem ég sagði og mamma mín líka“ Var með krabbamein á HM „Láttu í þér heyra, Orri!“ Leita að treyju félagsins sem Madonna klæddist árið 1990 Fær Barbie-útgáfu af sér fyrir Íslandsleikinn Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Messi eyddi kvöldinu með Trump Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Sjá meira